Eimskipsmót 3. flokks kvenna í knattspyrnu fer fram um næstu helgi.
11.5.2010
Um næstu helgi er ráðgert að halda hraðmót í 3. fl. kvenna. Um nýlundu er að ræða en mótið er haldið í samstarfi milli HK og Víkings á vegum 2. fl. og mfl. HK/Víkings með góðum liðstyrk 3. flokka hvors félags um sig sem munu verða í baráttunni í mótinu.
Leikið verður bæði á laugardegi og sunnudegi í tveimur aðskildum styrkleikaröðuðum keppnum. Keppninn er sniðin að hraðmóti þar sem leikið er 2x20 mínútur í 11 manna bolta. Spilað verður á gervigrasvöllunum í Fossvoginum í Fagralundi og í Víkinni en með því móti er hægt að koma fleiri liðum að í keppninni en það stefnir í að um 10 liða keppni verði að ræða.
Eimskip hefur svo lagt sín lóð á vogarskálarnar til þess að gera þetta mót sem best úr garði þannig að úr verði hressilegt æfingamót fyrir átök sumarsins sem brátt hefjast.
Hér fyrir neðan er svo birt merki sameiginlegs liðs HK og Víkings í 2. fl. og meistaraflokki kvenna sem skreyta mun búninga liðanna í sumar.
