lesa meira

Félagaskiptaglugginn að loka - breytingar í Víkinni

14.5.2010
Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti annað kvöld og hafa Víkingar fengið til liðs við sig Viktor Örn Guðmundsson frá Íslandsmeisturum FH. Viktor, sem kemur að láni, lék alla leiki FH í deildabikarnum í vor auk þess að skora sigurmark þeirra í leik gegn Breiðablik í Meistarakeppni KSÍ. Hann leikur ýmist sem vinstri bakvörður eða vinstri kantmaður og eykur því á samkeppni í liðinu.

Elvar Freyr Arnþórsson hefur verið lánaður til Gróttu og mun leika með þeim í sumar. Elvar framlengdi um leið samning sinn við Víking til haustsins 2011.