lesa meira

Davíð Ellertsson lánaður til ÍH

15.5.2010
Vinstri fótar bakvörðurinn knái Davíð Ellertsson hefur verið lánaður til 2. deildar liðs ÍH í Hafnarfirði. Davíð, sem gekk til liðs við Víking fyrir síðasta tímabil, óskaði eftir því að vera lánaður til að öðlast meiri leikæfingu og var ákveðið að verða við því. Það er þó alls ekki útilokað að Davíð verði kallaður til baka þegar líður á sumarið. Við óskum honum góðs gengis í þessu verkefni.