Fjölnir - Víkingur 2:2
15.5.2010


Víkingur mættu Fjölni í Grafarvoginum í 2.umferð Íslandsmótsins í gærkvöldi. Leikurinn endaði með stórmeistarajafntefli 2:2. Víkingur komst yfir á 22. mínútu með marki Dofra Snorrasonar en Fjölnismenn jöfnuðu leikinn á 82. mínútu. Okkar menn gáfust ekki upp og komust yfir á nýjan leik á 85. mínútu þegar Þorvaldur Sveinn Sveinsson var fyrstur að átta sig í vítateig andstæðinga og skoraði. Leiknum var þó ekki lokið og aftur jöfnuðu Fjölnismenn þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. Lokastaðan 2:2 og geta Víkingar vel við unað að fá stig út úr leiknum gegn baráttuglöðu Fjölnisliði. Nánar má lesa um leikinn á vef stuðningsmanna
vikingur.net
Að lokinni 2. umferð er Víkingsliðið í 3. sæti deildarinnar með 4 stig. Stöðuna og næstu leiki má sjá á vef
KSÍ.
Næsti leikur liðsins er í VISA bikarnum miðvikudaginn 19. maí gegn Skallagrími í Borgarnesi og hefst leikurinn kl. 19:00. Skallagrímsmenn sigruðu lið Afríku örugglega 9:0 í 1. umferð bikarsins og eru sýnd veiði en ekki gefin.