3. fl. kvenna. Eimskipsmótið hálfnað í góðu veðri.
15.5.2010
Það
er ekki amalegt að stunda knattspyrnu í þeirri blíðunni sem boðið var
upp á í Fossvogsdalnum þennan laugardaginn. HK/Víkingur stendur þessa
helgina fyrir móti í 3. fl. kvenna og voru leiknar 10 leikir í tveimur
riðlum í dag.
Keppt er með hraðmótsfyrirkomulagi þannig að
leikið er 2x20 mínútur og bolta spyrnt beint í leik án þess að leggja
hann niður eftir að hann berst aftur fyrir endamörk. Þetta leiddi til
þess að góður hraði var í leikjunum og mörk skoruð í þeim öllum. Af
heimaliðum er það að segja að Víkingar eru taplausir eftir 1 jafntefli
og 1 sigur en HK búið að vinna einn og tapa einum. Raðað var eftir
styrkleika í riðlana til að fá sem jafnasta og skemmtilegasta leiiki og
virðist hafa tekist mæta vel til í því.
Síðari leikirnir verða
svo leiknir á sunnudag en það fyrirkomulag er haft að liðin leika bæði
í Víkinni og í Fagralundi og rölta á milli enda stuttur göngutúr.
Tekin var liðsmynd af liðunum hverju fyrir sig í upphafi keppni og hér getur að líta myndina af Víkingi.
Frétt af HK-vefnum