lesa meira

3. fl. kvenna. Eimskipsmótinu lokið.

16.5.2010

Síðari keppnisdagurinn á Eimskipsmóti HK/Víkings í 3. fl. kvenna var jafn bjartur og sá fyrri og leikgleðin í fyrirrúmi og keppnisskapið með í för eins og lög gera ráð fyrir.

Leiknir voru tveir sjálfstæðir riðlar sem kenndir voru við þjálfara 3. fl. HK og Víkings, enda félögin í sitthvorri keppninni og þannig krýndir tveir sigurvegarar í mótslok.

Leikar fóru svo að í þeim riðlinum sem kenndur var við Jóhann, þjáflara HK:
1. Sæti Valur með 10 stig
2. Sæti HK með 9 stig.
3. Sæti Stjarnan með 7 stig.

Í riðlinum sem kenndur var við Einar þjáflara Víkings urðu úrslitin þessi:
1. Sæti Þróttur með 10 stig.
2. Sæti Víkingur með 8 stig.
3. Sæti Stjarnan með 7. stig.

Svo vel vildi til, upp á spennuna að gera að síðasti leikur mótsins var leikur Stjörnunnar og Vals en ef Stjarnan hefði unnið þann leik hefði liðið staðið uppi sem sigurvegari þar sem markatala liðanna yrði þá jöfn en í því tilviki hefði innbyrðis viðureign ráðið röðun liðanna. Greinilegt var að Stjarnan ætlaði að selja sig dýrt í leiknum en raunar var Valsliðið algerlega staðráðið í að láta ekki sitt eftir liggja og hóf leik af miklum krafti og réði lofum og lögum í fyrri hluta fyrri hálfleiks og komst verðskuldað yfir. Hefði liðið með smá heppni getað skorað drjúgt fleiri. Stjarnan jafnaði sig er leið á hálfleikinn og náði undirtökunum og jafnaði verðskuldað með góðu skallamarki eftir hornspyrnu. Staðan þannig jöfn í hálfleik1-1. Í síðari hálfleik tók baráttann nánast öll völd en minna varð um spil en Valur fékk þó nokkur hættuleg færi sem fóru forgörðum en hálfleikurinn þróaðist svipað og sá fyrri Stjarnan náði undirtökunum og sótti ákaft án þess þó að ná að skapa sér brúkleg færi. Þrátt fyrir að Valur kæmist lítt áleiðis náði liðið að halda leikinn út en jafntefli dugði Val til verðskuldaðs sigurs í mótinu.

Ánægjulegu móti lauk svo með pizzuveislu veglegri sem slegið var upp fyrir keppendur í Víkinni.

HK/Víkingur færir Eimskip þakkir fyrir stuðning við kvennaknatttspyrnu félaganna.

Mynd 1. Bæði lið Vals með verðlaunabikarinn.
Mynd 2. Lið Þróttar með sín sigurlaun.
Mynd 3. Úr leik Þórs og FH.
Mynd 4. Víkingur sækir hart að marki Stjörnunnar.
Mynd 5. Úr leik HK og Vals.











Frétt af heimsíðu HK