lesa meira

Skallagrímur-Víkingur í VISA bikarnum í kvöld kl. 19:00

19.5.2010

Víkingar hefja leik í VISA bikarkeppni KSÍ í kvöld þegar liðið sækir Skallagrím heim í Borgarnesi. Sigurvegarar leiksins fara í pottinn þegar dregið verður í 32 liða úrslit keppninnar. Lið Skallagríms leikur í 3. deildinni og hefur í gegnum tíðina notið góðs af nálægð sinni við Skagann þegar kemur að leikmannamálum. Síðustu vikur hafa 6 leikmenn skipt frá ÍA yfir í Skallagrím en töluverðar breytingar hafa átt sér stað hjá þeim eftir dapurt tímabil í fyrra. Liðið sigraði aðeins 5 leiki af 15 í C-riðli 3. deildar og hlaut 17 stig af 45 stigum mögulegum. Leikurinn hefst kl. 19 og kostar 500 krónur inn fyrir fullorðna en frítt fyrir 16 ára og yngri skv. heimasíðu Skallagríms.