Aðalvinningur í happadrætti 4.flokks sóttur
20.5.2010

Í dag gaf handhafi miðans sem hreppti 1. vinning í happadrætti 4. flokks karla í knattspyrnu sig fram við starfsmenn í Víkinni. Það var einn pabbinn í flokknum sem var sá heppni og hlaut að launum gjafabréf frá Ferðaskrifstofunni VITA að upphæð kr. 120.000,-
Á myndinni hér til hliðar afhendir Ólafur Ólafsson, íþróttastjóri Víkings, Jakobi Þorsteinssyni vinninginn góða.
Enn eru fjölmargir vinningar ósóttir og skorum við á fólk að kanna sína miða. Vinningsnúmerin má finna
hér.