Hópurinn stækkar í meistaraflokki kvenna
20.5.2010
20. maí 2010
Meistaraflokkur kvenna spilar fyrsta leik sinn á Íslandsmótinu á laugardaginn og hefur síðustu daga og vikur fengið mikinn liðsauka fyrir baráttuna í sumar.
Sex leikmenn hafa bæst í hópinn, þar af hafa tvær af leikjahæstu leikmönnum HK/Víkings frá upphafi tekið fram skóna á ný eftir nokkurt hlé. Fjórar hafa komið frá öðrum félögum og sú fimmta er væntanleg.
Á móti kemur að tvær af þeim reyndustu í hópnum missa af byrjun Íslandsmótsins. Valgerður Tryggvadóttir fyrirliði er að jafna sig af ökklameiðslum sem hún varð fyrir í Lengjubikarnum og Sólveig Þórarinsdóttir er erlendis í námsferð og verður ekki í fyrstu leikjunum.
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir og Inga Lára Óladóttir eru byrjaðar að æfa á ný eftir þriggja ára fjarveru.
Sigurrós, sem er 25 ára tengiliður, lék 94 leiki og skoraði 25 mörk á fyrstu sex árum meistaraflokks HK/Víkings og var um skeið marka- og síðan leikjahæsti leikmaður liðsins, og m.a. kjörin besti leikmaðurinn árið 2005.
Inga Lára, sem er 31 árs, tengiliður eða varnarmaður, lék með HK/Víkingi 2003-2006 og var síðan í liðsstjórn liðsins næstu tvö ár á eftir. Hún á 80 leiki að baki með meistaraflokki HK/Víkings.
"Það er nokkuð langt síðan þær spiluðu síðast svo ég hef verið að kynna þeim ýmsar nýjungar, eins og gervigras og óreimaða bolta," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings í léttum dúr.
"Það hafa orðið gríðarlegar breytingar á liðinu frá því í fyrra. Tíu leikmenn úr byrjunarliðinu eru farnir annað og við höfum verið að smíða nýtt lið í vetur. Sú vinna gengur rólega en er á réttri leið. Óvissuþættirnir eru margir ennþá og væntingarnar fyrir sumarið eru hófstilltar. Ungu leikmennirnir okkar þurfa tíma, og munu fá hann. Við komum til með að fagna hverju marki og hverju stigi sem kemur í hús," sagði Sigurður ennfremur um baráttuna sem framundan er.
Þær sem hafa bæst í hópinn frá öðrum félögum síðustu daga og vikur eru eftirtaldar:
Kristín Lilja Friðriksdóttir, 25 ára, kemur frá FH. Hún lék með FH í 1. deildinni í fyrra og áður með Fjölni og HSH.
Hjördís Hugrún Sigurjónsdóttir, 24 ára, kemur frá Stjörnunni. Hún hefur ekki spilað í efstu deild en var í láni hjá Haukum í 1. deildinni fyrir tveimur árum.
Mjöll Einarsdóttir, 20 ára, kemur úr Val eftir stutta viðdvöl í Fram í vetur. Hún lék með Völsungi í 1. deildinni 2007 og 2008.
Tinna Rut Guðmundsdóttir, 25 ára, kemur frá Leikni á Fáskrúðsfirði. Hún hefur undanfarin ár leikið með Austfjarðaliðunum Leikni og Fjarðabyggð og síðast með sameiginlegu liði þeirra.
Þá mun Anna María Guðmundsdóttir, 20 ára, bætast í hópinn þegar hún hefur lokið verkefni með U20 ára landsliði Íslands í handbolta. Hún hefur gengið frá félagaskiptum úr Val.
Fyrsti leikur HK/Víkings í 1. deildinni er gegn Draupni frá Akureyri á laugardaginn, 22. maí, og er spilað í Kórnum klukkan 16.00. Síðan er spilað við Álftanes á útivelli 27. maí og Keflavík á heimavelli 2. júní, en 5. júní fer liðið til Sauðárkróks og leikur þar gegn Tindastóli/Neista í VISA-bikarnum.
Leikir meistaraflokks kvenna 2010.
Mynd: Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir hefur tekið fram skóna með meistaraflokki kvenna á ný.
Frétt af heimsíðu HK