lesa meira

Annar flokkur karla hóf keppnistímabilið á góðum 3 - 1 sigri á ÍR.

21.5.2010
Annar flokkur Víkings hóf keppnistímabilið á góðum sigri 3- á IR á ÍR velli í gær. Víkingar byrjuðu leikinn á miklum krafti og sköpuðum sér góð marktækifæri í upphafi leiks. Það var svo Tómas sem spilaði í sigurleik meistaraflokksins kvöldið áður í Borgarnesi sem skoðað fyrsta mark liðsins með viðstöðulausu skoti eftir hornspyrnu Garðars. Víkingar héldu svo áfram að þjarma að marki ÍR með sláar skotum Gunnars og  Daníels. Það var svo Daníel sem bætti við öðru marki Víkings með skalla eftir góðan undirbúning Garðars frá hægri kantinum. Daníel bætti svo sínu öðru marki og þriðja marki Víkinga áður en hálfleikurinn var allur.

 

Síðari hálfleikur einkenndist meira af baráttu liðanna, ÍRingar komu meira inn í leikinn og minnkuðu muninn úr vítaspyrnu þegar 20 mín voru liðnar af síðari hálfleik. Lítið markvert gerðist eftir það og innbirgði Víkingar góðan útisigur í sínum fyrsta leik í Íslandsmótinu.

 

Byrjunarlið Víkings:

Svavar

Tómas

Kristinn

Hrafnkell

Davíð

Garðar

Sverrir

Garðar

Karel

Daníel

Gunnar

 

Varamenn

Bergur (inná á 45 mín)

Jakob (inná á 60 mín)

Kári

Jón Arnar

Einar