Stúlkurnar í 2. flokki byrjuðu Íslandsmótið með miklum krafti í gærkvöld. Þær sóttu lið Álftaness heim á Bessastaðavöll og unnu þar yfirburðasigur, 10:2. Natalía Reynisdóttir og Elma Lára Auðunsdóttir skoruðu 3 mörk hvor, Rakel Lind Ragnarsdóttir 2, Hildigunnur Sól Eldjárn og Diljá Helgadóttir eitt hvor. Nánar um leikinn fljótlega. Frétt af heimasíðu HK Mynd 1: Natalía skoraði þrennu og er hér á fullri ferð í átt að marki Álftaness. Mynd 2: Hildigunnur var á meðal markaskoranna. Mynd 3: Diljá tekur hornspyrnu. Mynd 4: Sigurrós leikur fram völlinn. Mynd 5: Ólöf í baráttunni.