lesa meira

HK/Víkingur byrjaði á 4:0 sigri

23.5.2010

HK/Víkingur byrjaði á 4:0 sigri

Meistaraflokkslið HK/Víkings fór vel af stað á Íslandsmótinu í ár því liðið vann í dag 4:0 sigur á Draupni frá Akureyri í 1. deild kvenna, en leikur liðanna fór fram í Kórnum.

Kristín Lilja Friðriksdóttir skoraði tvö mörk snemma leiks, í sínum fyrsta leik fyrir HK/Víking. Guðrún Hermannsdóttir og Anna Daníelsdóttir bættu síðan við mörkum í seinni hálfleiknum.

Mótið fór vel af stað hjá hinu unga liði HK/Víkings. Vörnin í dag var skipuð mjög ungum leikmönnum. Tveimur leikmönnum úr 2. flokki og tveimur leikmönnum úr þriðja flokki, þar af önnur af yngra ári. Þær stóðu sig allar mjög vel. Fyrir aftan þær stóð Guðrún Anna Atladóttir í sínum fyrsta heila leik í marki í háa herrans tíma og spilaði óaðfinnanlega.

Leikurinn fór vel af stað hjá HK/Víkingi sem réð lögum og lofum á vellinum og fékk fjórar hornspyrnur á fyrsta korterinu. Kristín Lilja stimplaði sig skemmtilega inn í liðið með tveimur glæsilegum mörkum, það seinna g erði hún með þrumuskoti þar sem hún tók boltann viðstöðulaust á lofti.

Staðan í hálfleik var 2:0 og HK/Víkingur var ívið sterkari en Draupnisstúlkur voru þó hættulegar með sínar fljótu framlínu.

HK/Víkingur bætti tveimur mörkum við í seinni hálfleik, fyrst Guðrún H. með þrumuskoti á 75. mínútu og svo Anna tveimur mínútum síðar. Sjálfsmarkslykt var af því en markið skráð á Önnu.

"Ég er mjög stoltur af liðinu í dag, góður andi og mikill dugnaður skóp þennan sigur. Byrjunarliðið var skipað fjórum leikmönnum á meistaraflokksaldri og sjö strumpum, fjórum úr 2. flokki og þrem úr þriðja flokki. Draupnisliðið er hörkulið með fullt af flottum leikmönnum, þær verða enn betri þegar líður á sumarið," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

"Við vorum heldur betra liðið í fyrri hálfleik en fyrstu tíu mínúturnar í þeim seinni voru vendipunkturinn í dag. Þar stóðum við af okkur harða atlögu þeirra og náum að afgreiða leikinn. Það var fínt spil í liðinu, miðjumenn okkar hlupu mikið og allir leikmenn stóðu sig vel," sagði Sigurður.

Liðið var þannig skipað:

Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir  

Varnarmenn:
Berglind Anna Víðisdóttir (Anna Daníelsdóttir 53.) 
Ingibjörg Björnsdóttir 
Glódís Perla Viggósdóttir 
Anna Margrét Benediktsdóttir 

Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir fyrirliði (Sólrún Sigvaldadóttir 75.)
Kristín Lilja Friðriksdóttir
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Sif Ólafsdóttir 61.)

Framherjar:
Hugrún Friðriksdóttir (Eva Eðvaldsdóttir 20.)
Tinna Óðinsdóttir  
Guðrún Hermannsdóttir 

Meiddar og utan hóps:
Arna Björk Björgvinsdóttir 
Arndís Rós Stefánsdóttir 
Ásdís Ósk Heimisdóttir 
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Guðný K. Magnúsdóttir 
Hildigunnur Sól Eldjárn 
Margrét Ýr Björnsdóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Regína Jónsdóttir 
Sólveig Þórarinsdóttir
Svava Björk Hölludóttir 
Valgerður Tryggvadóttir 
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Fimmtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Kristín Lilja lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með HK/Víkingi. Ingibjörg B. er eini leikmaðurinn sem hefur spilað alla 10 mótsleiki liðsins á þessu ári. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Heiður og Tinna voru einu leikmenn liðsins í þessum leik sem hafa spilað meira en 35 leiki með meistaraflokki HK/Víkings. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.

* Þetta var fyrsti mótsleikur HK/Víkings og Draupnis í meistaraflokki. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti mótsleikur er gegn Álftanesi á Bessastaðavelli, í 1. deildinni, fimmtudaginn 27. maí klukkan 20.00. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd 1: Tilbúnar í siguröskrið í leikslok!
Mynd 2: Tinna var í framlínunni og sækir hér að markinu.
Mynd 3: Berglind Anna í baráttunni, hún byrjaði sem bakvörður og fór síðan á hægri kantinn.
Mynd 4: Hugrún spilaði fyrstu 20 mínúturnar en þurfti þá að fara af velli. Hér er hún í stórsókn.
Mynd 5: Hamagangur í vítateig Draupnis.
(Myndir Óðinn Þórarinsson)











Frétt af heimsíðu HK.