lesa meira

HK/Víkingur vann og Tinna skoraði í 100. leiknum

27.5.2010

27. maí 2010

HK/Víkingur vann og Tinna skoraði í 100. leiknum

HK/Víkingur sigraði Álftanes, 2:0, í 1. deild kvenna á Bessastaðavelli í kvöld og liðið er þar með komið með sex stig eftir fyrstu tvo leikina, án þess að fá á sig mark. Hjördís Hugrún Sigurjónsdóttir og Tinna Óðinsdóttir skoruðu mörkin.

Tinna lék sinn 100. meistaraflokksleik með HK/Víkingi í kvöld. Hún er sú fjórða frá upphafi sem nær þeim leikjafjölda og hélt vel upp á það með því að skora. Hún lék því sama leik og kærastinn, Hörður Magnússon, sóknarmaður meistaraflokks HK, sem líka skoraði í sínum 100. leik á dögunum!
 
Leikurinn fór vel af stað. Hjördís fékk stungusendingu innfyrir vörn Álftaness strax á fyrstu mínútunni og skoraði örugglega. Hennar fyrsti leikur fyrir HK/Víking og því frábær byrjun.

Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks var fátt um spil en mikill barningur og barátta. HK/Víkingur var nær því að skora en heimastúlkur en staðan var 1:0 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var betur spilaður en seinna markið lét á sér standa þar til á síðustu mínútu leiksins þegar Tinna innsiglaði sigurinn með snyrtilegri afgreiðslu eftir stungusendingu. Niðurstaðan var því 2:0 sigur.

"Þetta var nú ekkert sérstaklega vel spilaður leikur af okkar hálfu. Okkur gekk illa að halda boltanum og hann gekk illa innan liðsins. Guðrún Anna  var öryggið uppmálað í markinu, varnarvinna liðsins var góð en í sókninni vantar okkur meiri hreyfingu án bolta. Ég er mjög ánægður með að ná í þrjú stig í kvöld því þetta er erfiður útivöllur," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

Staðan í A-riðli 1. deildar.

Liðið var þannig skipað:

Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir  

Varnarmenn:
Eva Eðvaldsdóttir (Sigurrós Halldórsdóttir 65.)
Ingibjörg Björnsdóttir
Arndís Rós Stefánsdóttir 
Anna Margrét Benediktsdóttir 

Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir fyrirliði
Kristín Lilja Friðriksdóttir 
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Sólrún Sigvaldadóttir 90.)

Framherjar:
Tinna Óðinsdóttir  
Guðrún Hermannsdóttir (Sif Ólafsdóttir 75.)
Hjördís H. Sigurjónsdóttir (Hildigunnur Sól Eldjárn 50.)

Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Arna Björk Björgvinsdóttir 
Ásdís Ósk Heimisdóttir 
Berglind Anna Víðisdóttir 
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Guðný K. Magnúsdóttir 
Margrét Ýr Björnsdóttir 
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Regína Jónsdóttir 
Sólveig Þórarinsdóttir
Svava Björk Hölludóttir 
Valgerður Tryggvadóttir 
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Fimmtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Hjördís og Sigurrós léku báðar sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir HK/Víking. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Tinna lék sinn 100. meistaraflokksleik, eins og getið er að ofan. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.

* Þetta var sjötti mótsleikur HK/Víkings og Álftaness í meistaraflokki. HK/Víkingur hefur unnið alla, en var reyndar úrskurðaður sigur í deildabikarnum í vetur eftir að liðin gerðu jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti mótsleikur er gegn Keflavík á Kópavogs, í 1. deildinni, miðvikudaginn 2. júní klukkan 20.00. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd 1: Kristín Lilja og Tinna fagna í leikslok.
Mynd 2: Ingibjörg Sigvaldadóttir í baráttu við tvær bláar á miðjunni.
Mynd 3: Marki fagnað.
Mynd 4: Sigurður fagnar með stúlkunum í leikslok.
Mynd 5: Tinna sækir að marki Álftaness.
(Myndir Óðinn Þórarinsson)











Frétt af heimasíðu HK