Grátlegt tap á Akureyri
29.5.2010
Víkingar sóttu Þór Akureyri heim í kvöld og máttu þola grátlegt tap 4:3. Allt lék í lyndi í upphafi leiks og mörk frá Walter Hjaltested og Agli Atlasyni komu okkar mönnum í 0:2 eftir rúmlega 8 mínútna leik. Eflaust héldu margir vallargestir að þar með væri leikurinn svo gott sem búinn en leikmenn Þórs voru á öðru máli og spýttu heldur betur í lófana. Þeir jöfnuðu leikinn með mörkum á 26. mínútu og 40. mínútu. Fyrra mark Þórs var einstaklega glæsilegt.
Víkingar mættu mun sterkari til leiks í síðari hálfleik og áttu leikinn algjörlega. Á 82. mínútu dró loks til tíðinda þegar Viktor Örn Guðmundsson skoraði af stuttu færi eftir undirbúning Helga Sig og Jakob Spangsberg. Lokamínúturnar fara svo í sögubækurnar. Þór jafnaði leikinn á 89. mínútu og tryggðu sér sigur á 94. mínútu. Nokkrum andartökum síðar flautaði dómarinn leikinn af.
Það stefndi í karakter sigur á einum erfiðasta útivelli deildarinnar en á augabragði snerist leikurinn í martröð og Víkingar sátu eftir með sárt ennið.
Þrátt fyrir sárt tap situr liðið í 4.sæti deildarinnar og er 3 stigum frá efsta sætinu. Stuðningur við liðið er því afar mikilvægur í komandi leikjum.
Næsti leikur liðsins er miðvikudaginn 2. júní kl. 19:00 þegar Sindri frá Hornafirði mætir í Víkina í 32-liða úrslitum VISA bikarins. Næsti leikur í deildinni er svo laugardaginn 5. júní gegn Njarðvík í Víkinni og hefst hann kl. 14:00.