VISA bikarkeppni KSÍ í kvöld í Víkinni
2.6.2010

Víkingar taka á móti Sindra frá Höfn í Hornafirði í 32 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í kvöld kl. 19:15. Sindramenn, sem leika í 3. deildinni, hafa farið vel af stað og eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Það er Grindvíkingurinn knái Óli Stefán Flóventsson sem þjálfar liðið í dag.
Sterkasta tenging okkar Víkinga við Sindra er eflaust í gegnum Þránd Sigurðsson, hornfirska undrabarnið sem hefur leikið og þjálfað í Víkinni síðan elstu menn muna. Þrándur er fæddur og uppalinn á Höfn og mun eflaust eiga erfitt með að gera upp við sig með hverjum skal halda í kvöld. Leifur Garðarsson þjálfaði lið Sindra árið árið 1993 í samvinnu við Þránd. Þá lék Egill Atlason 6 leiki fyrir Sindra sumarið 2002, þar af 2 í bikarkeppninni. Fyrirliði Sindramanna Jón Haukur Haraldsson er ekki ókunnugur í Víkinni en hann lék með 2. flokki félagsins árið 2005 og 2006.
Lið Sindra lagði Huginn á Seyðisfirði 2:5 í fyrstu umferð keppninnar og fengu svo Leikni frá Fáskrúðsfirði í heimsókn í 2. umferð og sigruðu aftur 5:2.
Víkingur kom inn í keppnina í 2. umferð og sigraði Skallagrím í Borgarnesi 0:6.
Þar sem leikurinn í kvöld er bikarleikur, og tekjur af aðgangseyri og kostnaður vegna leiksins er sameiginlegur, gilda árskort ekki frekar en fyrri ár.
Miðaverð er kr. 1.000 og frítt fyrir 16 ára og yngri.