Þriðji sigurinn í röð hjá 2. flokki karla.
2.6.2010
Annar flokkur Víkings hélt áfram sigurgöngu sinni á Íslandsmótinu með sínum þriðja sigri í jafnmörgum leikjum. Strákarnir léku sinn fyrsta heimaleik á móti sameinaðu liði Grindavíkur/Njarvíkur og uppskáru 2-0 sigur. Það var Grindavík/Njarvík sem byrjaði leikinn betur en þó án þessa að skapa sér umtalsverð marktækifæri. Staðan í hálfleik 0-0. Í síðari hálfleik komu okkar strákar sterkir til leiks og sköpuðu sér nokkur tækifæri, það var svo Danni sem skorði fyrra mark liðsins er gott uppspil. Sverrir fyrirliðið liðsins tryggði svo okkar strákum sigurinn 10 mín fyrir leiklok með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig Grindavíkur/Njarvíkur. Strákarnir hafa byrjað Íslandsmótið mjög vel og hvetjum við alla Víkinga að styðja við bakið á þessu efnilegu strákum.