Öruggur sigur á Sindra 7:0
3.6.2010

Víkingar léku gegn Sindra í 32 liða úrslitum VISA bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Leikurinn var hin ágætasta skemmtun enda litu fjölmörg Víkingsmörk dagsins ljós. Það er skemmst frá því að segja að 7:0 sigur varð niðurstaða og skoruðu eftirtaldir mörk okkar manna:
1-0 Viktor Örn Guðmundsson (21.)
2-0 Viktor Örn Guðmundsson (24.)
3-0 Þorvaldur Sveinn Sveinsson (40.)
4-0 Viktor Örn Guðmundsson (42.)
5-0 Viktor Örn Guðmundsson (58.)
6-0 Tómas Guðmundsson (75.)
7-0 Garðar Ingi Leifsson (87.)
Víkingar verða því í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslit keppninnar á mánudaginn kemur.