Víkingur-Njarðvík á laugardag kl. 14:00 í Víkinni
3.6.2010


Á laugardaginn hefst 5. umferð 1. deildar og að þessu sinni taka Víkingar á móti Njarðvík í Víkinni kl. 14:00. Leikurinn er báðum liðum geysilega mikilvægur. Víkingar sitja í 4. sæti deildarinnar með 7 stig og geta með sigri blandað sér af miklum þunga í toppbaráttu deildarinnar. Njarðvíkingar sitja hins vegar í neðsta sætinu með 1 stig af 12 mögulegum. Það stig kom í síðustu umferð þegar liðið gerði jafntefli við KA á heimavelli 1:1.
Njarðvíkingar töpuðu í Fjarðabyggð eftir framlengdan leik 3:2 í 32 liða úrslitum VISA bikarkeppni KSÍ á miðvikudagskvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2:2. Það er því ljóst að lið Njarðvíkur er að ná sér á strik eftir erfiða byrjun.
Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þess að fólk fjölmenni á leikinn og styðji Víkingsliðið í komandi leikjum. Mikil krafa er gerð til liðsins og nú vilja strákarnir gera þá kröfu á stuðningsmenn að styðja við bakið á sér í gegnum þykkt og þunnt. Næstu leikir ráða miklu varðandi framhaldið í deildinni. Nú er lag - Áfram Víkingur !
Í 6. umferð mæta Skagamenn í Víkina þann 11. júní kl. 20:00.