Keflavík hafði betur í toppslagnum
3.6.2010
HK/Víkingur tók í gærkvöldi á móti Keflavík í viðureign liðanna í tveimur efstu sætum A-riðils 1. deildar kvenna, á Kópavogsvelli. Keflavík var sterkari aðilinn og sigraði örugglega, 5:0, sem var þó kannski helst til stór sigur miðað við gang leiksins.
Leikurinn fór rólega af stað. Keflavík hafði þó frumkvæðið og skoraði tvö mörk með stuttu millibili, á 22. og 24. mínútu og staðan var þá allt í einu orðin 2:0. HK/Víkingur átti góðan kafla í kjölfarið og var nálægt því að skora stuttu síðar eftir hornspyrnu þegar varnarmaður bjargaði naumlega á marklínu frá Ingibjörgu Björnsdóttur.
Í byrjun síðari hálfleiks gerði HK/Víkingur harða hríð að marki Keflavíkur án þess þó að ná að skapa verulega færi. Á 65. mínútu bættu Keflvíkingar við þriðja markinu og því fjórða strax fjórum mínútum síðar. Þær innsigluðu svo öruggan sigur með fimmta markinu.
"Við Við áttum við ofurefli að etja í dag. Keflavíkurliðið er mjög gott, fullt af sprækum leikmönnum. Mörkin sem við fengum á okkur voru frekar ódýr og fimm marka munur gefur ekki alveg rétta mynd af getumun liðanna. Við náðum ekki því besta fram, það vantaði nokkuð upp á hugarfarið hjá okkur og fátt var um fína drætti í spilinu okkar í dag. Við erum að vinna með nánast nýtt lið og höldum ótrauð áfram," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.
Staðan í A-riðli 1. deildar.
Liðið var þannig skipað:
Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir
Varnarmenn:
Arndís Rós Stefánsdóttir (Eva Eðvaldsdóttir 46.)
Ingibjörg Björnsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir (Berglind Anna Víðisdóttir 72.)
Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir fyrirliði
Kristín Lilja Friðriksdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Framherjar:
Hugrún Friðriksdóttir (Valgerður Tryggvadóttir 72.)
Tinna Óðinsdóttir (Ingibjörg Sigvaldadóttir 62.)
Hjördís H. Sigurjónsdóttir (Guðrún Hermannsdóttir 46.)
Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Arna Björk Björgvinsdóttir
Ásdís Ósk Heimisdóttir
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Hildigunnur Sól Eldjárn
Margrét Ýr Björnsdóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir
Sif Ólafsdóttir
Sólrún Sigvaldadóttir
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)
* Sextán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sólveig og Valgerður voru með á ný eftir nokkra fjarveru Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.
* Heiður lék sinn 50. leik á Íslandsmóti. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
* Þetta var 13. mótsleikur HK/Víkings og Keflavíkur í meistaraflokki. HK/Víkingur hefur unnið 4 en Keflavík 6 og 3 hafa endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.
* Næsti mótsleikur er gegn Tindastóli/Neista í VISA-bikarnum á Sauðárkróksvelli laugardaginn 5. júní klukkan 17.00. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.
Mynd 1: Glódís Perla Viggósdóttir umkringd af þremur Keflvíkingum.
Mynd 2: Guðrún Anna Atladóttir grípur boltann örugglega í markinu.
Mynd 3: Hjördís H. Sigurjónsdóttir í hörðum slag.
Mynd 4: Hugrún Friðriksdóttir sækir að marki Keflavíkur.
Mynd 5: Lið HK/Víkings sem lék gegn Keflavík.
(Myndir Óðinn Þórarinsson)
Frétt af heimasíðu HK