lesa meira

Sigur á Njarðvíkingum

5.6.2010
Í dag léku Víkingar gegn Njarðvíkingum í dýrindisveðri í Víkinni. Það er skemmst frá því að segja að Víkingar sigruðu 1:0 og hafa 10 stig að loknum 5 umferðum.
Leikurinn var ekki sérlega mikið fyrir augað en þó brá fyrir ágætis köflum hjá okkar mönnum, aðallega í síðari hálfleik. Staðan í leikhléi var markalaus. Þrátt fyrir að Víkingar hafi að mestu stjórnað umferðinni þurfti Magnús Þormar markvörður að taka á honum stóra sínum í tvígang. Leifur Garðarsson þjálfari var því ekki sérlega brosmildur þegar hann gekk til búningsklefa í hálfleik.
Allt annar bragur var á liðinu lengstum í síðari hálfleik og má segja að varamenn liðsins hafi svarað kallinu - enginn betur en Daníel Hjaltason sem skoraði sigurmarkið á 64. mínútu.
Frekari umfjöllun má lesa á síðu hinna ötullu stuðningsmanna Víkings, vikingur.net, en þeir brydda upp á þeirri nýjung að vera með videoviðtöl við menn eftir leik.
Næsti leikur er heimaleikur gegn stórveldinu af Skaganum. Hann fer fram föstudaginn 11. júní kl. 20:00. Gríðarlega mikilvægt er að Víkingar fjölmenni á þennan leik og styðji strákana til sigurs.
Áfram Víkingur !