Tvö rauð spjöld og HK/Víkingur úr leik í bikarnum
6.6.2010
5. júní 2010
Stúlkurnar
í meistaraflokki HK/Víkings lögðu land undir fót í dag og léku á
Sauðárkróki við lið Tindastóls/Neista í 2. umferð VISA-bikarsins.
Norðanstúlkur reyndust sterkari og sigruðu, 3:0, og fara í 16-liða
úrslitin en HK/Víkingur getur einbeitt sér að 1. deildinni...
HK/Víkingur
lék allan síðari hálfleikinn með 10 menn eftir að Hildigunnur Sól
Eldjárn fékk rauða spjaldið undir lok þess fyrri. Á lokamínútunum fékk
Kristín Lilja Friðriksdóttir líka rauða spjaldið.
Nánar um leikinn fljótlega.
Liðið var þannig skipað:
Margrét Ýr Björnsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir
Ingibjörg Björnsdóttir
Arndís Rós Stefánsdóttir
Heiður Loftsdóttir
Valgerður Tryggvadóttir (Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir 76.)
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Inga Lára Óladóttir 85.)
Kristín Lilja Friðriksdóttir
Hjördís H. Sigurjónsdóttir
Sólrún Sigvaldadóttir (Guðrún Hermannsdóttir 46.)
Hildigunnur Sól Eldjárn
Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Arna Björk Björgvinsdóttir
Ásdís Ósk Heimisdóttir
Berglind Anna Víðisdóttir
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Guðrún Anna Atladóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir
Sif Ólafsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Tinna Óðinsdóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir (3.fl.)
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)
* Fjórtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Ingibjörg B. lék sinn 20. meistaraflokksleik. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.
* Sigurrós María
lék sinn fyrsta leik í fjögur ár og Inga Lára sinn fyrsta í tvö ár en
þær eru báðar í hópi þeirra leikjahæstu frá upphafi. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
*
Þetta var fyrsti mótsleikur HK/Víkings og Tindastóls/Neista í
meistaraflokki. HK/Víkingur hafði áður einu sinni leikið við Tindastól
og unnið. Sjá nánar: Mótherjar.
* Næsti mótsleikur er heimaleikur gegn Völsungi í 1. deildinni sunnudaginn 13. júní. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.
Frétt af HK- vefnum