Það er sannkallaður stórleikur í Víkinni annað kvöld.
10.6.2010
Að þessu sinni eru það Skagamenn sem koma í heimsókn en leikir þessara liða eru ávallt mikil skemmtun.
Staða okkar Víkinga í deildinni er nokkuð vænleg og sigur í þessum leik kæmi okkur í verulega spennandi stöðu.
Skagamenn hafa hins vegar mætt töluverðum mótbyr í upphafi móts og þurfa á sigri að halda. Von er á töluverðum fjölda áhorfenda til að styðja við bakið á þeim.
Það er okkur mikilvægt að Víkingar fjölmenni á leikinn og hvetji sína menn til sigur en við gerum ráð fyrir u.þ.b. 1000 áhorfendum í Víkina á morgun og viljum við sjá Víkinga í miklum meirihluta.
Ýmislegt verður á boðstólum á leiknum, m.a. verður grillmeistarinn kominn af stað um kl. 19:15 og býður hamborgara á sanngjörnu verði. Berserkir verða einnig á sínum stað í kjallaranum.
Stöðuna og næstu leiki má sjá á vef KSÍ - http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=20604&Rodun=U
Áfram Víkingur !