lesa meira

Tvö í lokin og HK/Víkingur vann Völsung

13.6.2010

Tvö í lokin og HK/Víkingur vann Völsung

HK/Víkingur lagði í dag Völsung að velli, 2:1, í 1. deild kvenna í Víkinni. Húsvíkingar komust yfir snemma leiks og lengi vel stefndi allt í sigur þeirra en á lokamínútunum skoruðu Valgerður Tryggvadóttir og Sólveig Þórarinsdóttir og tryggðu HK/Víkingi sætan sigur.

Leikurinn fór rólega af stað en Völsungur skoraði ódýrt mark eftir fast leikatriði á 14. mínútu. HK/Víkingur var meira með boltann, skapaði sér nokkur góð færi en boltinn small í tréverki Völsungsmarksins ásamt sem góður markvörður Húsvíkinga bjargaði vel.

Í seinni hálfleik sótti HK/Víkingur stíft en náði ekki að skapa mikið af færum fyrsta hálftímann. Það gekk betur á lokakaflanum og á 84. mínútu skoraði Valgerður eftir hornspyrnu og jafnaði metin, 1:1.

Sólveig skoraði síðan sigurmarkið beint úr aukaspyrnu á 87. mínútu með snilldarskoti beint úr aukaspyrnu og tryggði 2:1 sigurinn.

"Þetta var mikill baráttuleikur í dag. Völsungur vann síðast hérna í Víkinni og er með hörkulið. Við sköpuðum okkur meira af færum en mörkin létu á sér standa þar til á elleftu stundum. Ég er mjög ánægður með þennan sigur, við erum á réttri leið og höldum ótrauð áfram," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

Hann var að vonum kátur með glæsilegt sigurmark Sólveigar, beint úr aukaspyrnu.

"Já, hún smellti honum í lokin, þetta var frábært mark. Ég sagði henni að skjóta með vinstri og skrúfa inn, en hún tók spyrnuna með hægri og setti hann í fjærhornið. Hún hlustaði ekkert á mig!" sagði Sigurður.

Liðið var þannig skipað:

Markvörður:
Margrét Ýr Björnsdóttir 

Varnarmenn:
Anna Margrét Benediktsdóttir 
Sólveig Þórarinsdóttir
Ingibjörg Björnsdóttir
Arndís Rós Stefánsdóttir 

Tengiliðir:
Glódís Perla Viggósdóttir 
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Mjöll Einarsdóttir 79.)
Valgerður Tryggvadóttir 

Framherjar:
Guðrún Hermannsdóttir (Sólrún Sigvaldadóttir 90.)
Tinna Óðinsdóttir 
Kristín Ósk Óskarsdóttir (Lovísa Þorsteinsdóttir 90.)

Varamaður:
Eva Eðvaldsdóttir (meiddist í upphitun)

Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Berglind Anna Víðisdóttir 
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Guðrún Anna Atladóttir  
Heiður Loftsdóttir 
Hildigunnur Sól Eldjárn (bann)
Hjördís H. Sigurðardóttir 
Inga Lára Óladóttir 
Kristín Lilja Friðriksdóttir (bann)
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Sif Ólafsdóttir 
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Fjórtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Ingibjörg S. lék sinn 20. meistaraflokksleik. Lovísa lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki og Mjöll sinn fyrsta fyrir HK/Víking en hún lék áður með Völsungi. Sólveig skoraði sitt fyrsta mark fyrir HK/Víking. Kristín Ósk lék sinn fyrsta leik í tvö ár. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Tinna og Valgerður voru þær einu af leikjahærri leikmönnum meistaraflokks sem voru með að þessu sinni. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.

* Þetta var þriðji mótsleikur HK/Víkings og Völsungs í meistaraflokki. Liðin hafa unnið sinn leikinn hvort og einn endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti mótsleikur er heimaleikur gegn Þrótti R. í 1. deildinni miðvikudaginn 16. júní. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd1 : Sólveig Þórarinsdóttir skoraði sigurmarkið og er hér með boltann á fullri ferð í leiknum. Fyrir aftan hana sjást Anna Margrét Benediktsdóttir og Valgerður Tryggvadóttir, sem jafnaði metin.
Mynd 2: Guðrún Hermannsdóttir sækir að marki Völsungs.
Mynd 3: Glódís Perla Viggósdóttir í baráttu á miðjunni.
Mynd 4: Glódís, Ingibjörg B., Anna Margrét og Arndís skokka eftir leikinn.
Mynd 5: Kristín Lilja og Hildigunnur voru í leikbanni eftir rauð spjöld í síðasta leik og voru brosmildar í stúkunnni!

(Mynd Óðinn)












Frétt af heimsíðu HK