HK/Víkingur veitti í kvöld firnasterku liði Þróttar harða keppni í 1. deild kvenna þegar liðin mættust í Víkinni. Þróttarkonur mörðu nauman sigur, 1:0, í leik þar sem úrslitin gátu fallið á hvorn veginn sem var. Þróttur hafði skorað 31 mark gegn engu í þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni og er nú á toppnum með 12 stig eftir 4 leiki. HK/Víkingur er í 3. sætinu með 9 stig eftir 5 leiki. Staðan í A-riðli 1. deildar. Leikurinn fór rólega af stað en mikil stöðubarátta var út um allan völl. HK/Víkingur var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og fékk nokkur ágæt færi en náði ekki að skora. Staðan var 0:0 í leikhléi. Í upphafi síðari hálfleiks sóttu Þróttarar af krafti og fengu nokkur dauðafæri en Guðrún Anna Atladóttir varði oft meistaralega í marki HK/Víkings. Leikurinn jafnaðist á ný þegar leið á hálfleikinn en Þróttur náði að skora sigurmarkið á 79. mínútu. Eftir það fékk HK/Víkingur nokkur úrvalsfæri til að jafna metin en þau nýttust ekki. "Það var allt frábært hjá okkur í kvöld nema úrslitin en ég er mjög stoltur af mínu liði. Allar lögðu sig 100 prósent fram, lásu leikinn vel og við áttum nokkur kjörin marktækifæri. Varnarleikur liðsins og markvarsla voru til fyrirmyndar og í sókninni bjuggum við til færi. Sigurinn féll með sterku Þróttarliði að þessu sinni en mínar dömur geta borið höfuðið hátt," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings. Liðið var þannig skipað: Markvörður: Guðrún Anna Atladóttir Varnarmenn: Anna Margrét Benediktsdóttir Sólveig Þórarinsdóttir Ingibjörg Björnsdóttir Arndís Rós Stefánsdóttir (Eva Eðvaldsdóttir 86.) Tengiliðir: Glódís Perla Viggósdóttir Heiður Loftsdóttir (Ingibjörg Sigvaldadóttir 56.) Valgerður Tryggvadóttir Framherjar: Kristín Lilja Friðriksdóttir (Guðrún Hermannsdóttir 56.) Tinna Óðinsdóttir Kristín Ósk Óskarsdóttir Varamenn: Sólrún Sigvaldadóttir Hildigunnur Sól Eldjárn Meiddar og utan hóps: Anna Daníelsdóttir Berglind Anna Víðisdóttir Elísabeth Ásgeirsdóttir Hjördís H. Sigurðardóttir Inga Lára Óladóttir Lovísa Þorsteinsdóttir Margrét Ýr Björnsdóttir María Rún Gunnlaugsdóttir Mjöll Einarsdóttir Sif Ólafsdóttir Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir Diljá Helgadóttir (3.fl.) Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.) Natalía Reynisdóttir (3.fl.) Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.) Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.) * Fjórtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Guðrún, Heiður, Kristín og Hildigunnur bættust allar við í hópinn frá síðasta leik. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010. * Heiður spilaði sinn 115. leik með meistaraflokki og Guðrún komst inná listann yfir þær leikjahæstu. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv. * Þetta var 28. mótsleikur HK/Víkings og Þróttar R. í meistaraflokki. Liðin eru nú hnífjöfn, hafa unnið 13 leiki hvort, en 2 hafa endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar. * Næsti mótsleikur er heimaleikur gegn Tindastóli/Neista á Kópavogsvelli 30. júní. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010. Mynd 1: Kristín Ósk Óskarsdóttir á fullri ferð. Mynd 2: Ingibjörg Sigvaldadóttir í hressilegu návígi. Mynd 3: Tinna Óðinsdóttir lék 100. leikinn á dögunum og var heiðruð fyrir leikinn í kvöld. Mynd 4: Heiður Loftsdóttir í hörðum slag. Mynd 5: Sólveig Þórarinsdóttir og Ingibjörg Björnsdóttir í baráttu í vörninni. (Myndir Óðinn)