Víkingur-Valur miðvikudag kl. 20:00 í Víkinni
22.6.2010


Það er sannkallaður stórleikur sem fer fram í Víkinni á miðvikudagskvöld kl. 20:00. Víkingar taka þá á móti Valsmönnum í 16 liða úrslitum Visa bikarsins. Valsmenn hafa farið vel af stað í Pepsideildinni og sitja nú í 1.-3. sæti deildarinnar ásamt Fram og Keflavík.
Leikir þessara liða hafa ávallt boðið upp á mikla skemmtun og þess er skemmst að minnast að Víkingur sló Val út í 8 liða úrslitum bikarsins árið 2006. Þá var leikið á Laugardalsvelli og skoruðu Daníel Hjaltason og Höskuldur Eiríksson mörk okkar manna eftir að Valur hafði náð forystunni.
Við skorum á fólk að mæta tímalega því ávallt myndast mikil röð í miðasölunni rétt fyrir leik. Grillmeistarar félagsins kynda undir grillunum kl. 19:15 og boðið verður upp á borgara og gos á kr. 1.000,-
Við minnum á að árskort og Víkingasveitarkort gilda ekki á leiki í bikarkeppninni vegna tekjuskiptingu liðanna.