1. deild karla: Víkingur - Grótta laugardag kl. 16:00
24.6.2010

Eftir tap gegn Val 1:3 í framlengdum bikarleik í gærkvöldi undirbýr meistaraflokkur sig fyrir næsta leik í 1. deildinni. Að þessu sinni eru það nýliðar Gróttu sem koma í Víkina. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur Víkinga og þörfin á stuðningi hefur sjaldan verið meiri. Það eru skýr markmið að liðið ætlar að berjast fyrir sæti í efstu deild að ári. Það gerist ekki nema Víkingar standi saman og styðji liðið alla leið.
Í liði Gróttu eru nokkrir leikmenn sem okkur Víkingum eru að góðu kunnir. Einir fjórir leikmenn liðsins voru í leikmannahópi Víkings á síðustu leiktíð. Það eru þeir Knútur Rúnar Jónsson, Grétar Ali Khan og Kjartan Ólafsson en auk þeirra er Elvar Freyr Arnþórsson í láni hjá Gróttu frá okkur Víkingum.
Athugið breyttan leiktíma - laugardagurinn 26. júní kl. 16:00.