lesa meira

Þrenna Guðrúnar og HK/Víkingur vann Álftanes

12.7.2010

12. júlí 2010

HK/Víkingur vann Álftanes, 5:3, í tvísýnum leik í 1. deild kvenna sem fram fór á Kópavogsvellinum í kvöld. Guðrún Hermannsdóttir skoraði þrennu fyrir HK/Víking en fyrstu tvö mörkin gerðu þær Tinna Óðinsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.

Þar með er HK/Víkingur kominn með 15 stig eftir 7 leiki og styrkti enn stöðu sína í 3. sæti A-riðils. Nú er hinsvegar erfiður tími framundan því allir fimm leikirnir sem eftir eru í deildinni eru á útivöllum, þar af tveir strax um næstu helgi, á Húsavík og Akureyri.

Staðan í A-riðli 1. deildar.

Þó leikmenn Álftaness virtust kraftmeiri á upphafsmínútunum komst HK/Víkingur yfir á 11. mínútu eftir fína skyndisókn. Ingibjörg Sigvaldadóttir átti stungusendingu á Tinnu sem skoraði af öryggi, 1:0.

Tíu mínútum síðar jafnaði Álftanes með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu, óverjandi og efst í markvinkilinn, 1:1.

Á síðustu 10 mínútunum í fyrri hálfleik spiluðu HK/Víkingsstúlkur sig hvað eftir annað í gegnum vörn Álftaness og uppskáru þrjú mörk. Hjördís skoraði, 2:1, eftir að Heiður sendi boltann í gegnum vörnina. Síðan slapp Tinna í gegn eftir stungusendingu Ingibjargar, markvörður og varnarmaður náðu að trufla hana en boltinn barst á Guðrúnu sem skoraði, 3:1. Guðrún bætti svo við marki, 4:1, eftir sendingu frá Tinnu, rétt áður en flautað var til hálfleiks.

Seinni hálfleikur var mikill barningur og HK/Víkingsstúlkur virtust mæta of værukærar til leiks. Álftanes skoraði á 57. og 59. mínútu og staðan var skyndilega orðin 4:3. Álftanesstúlkur sóttu áfram og voru hársbreidd frá því að jafna því þær áttu skalla í þverslá og skot í stöng.

En Kristín Lilja Friðriksdóttir kom inná sem varamaður og eitt af fyrstu verkum hennar var að senda boltann innfyrir vörnina á Guðrúnu sem slapp alein uppað markinu og skoraði, 5:3. Þrennan í höfn og sigurinn tryggður.

"Mér fannst við hafa allt í hendi okkar í hálfleik en seinni hálfleikurinn var eign gestanna, þær voru klaufar að ná ekki stigi af okkur í kvöld. Við verðum að taka betra hugarfar með okkur norður um helgina ef við eigum að ná í stig þar. Lið Álftaness verður betra með hverjum leik því þær voru mun betri í dag en þegar við mættum þeim í vor," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

Liðið var þannig skipað:

Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir 

Varnarmenn:
Berglind Anna Víðisdóttir 
Arndís Rós Stefánsdóttir (Lovísa Þorsteinsdóttir 46.)
Ingibjörg Björnsdóttir (Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir 62.)
Eva Eðvaldsdóttir 

Tengiliðir:
Valgerður Tryggvadóttir (Kristín Lilja Friðriksdóttir 77.)
Heiður Loftsdóttir 
Ingibjörg Sigvaldadóttir 

Framherjar:
Tinna Óðinsdóttir 
Guðrún Hermannsdóttir (Margrét Ýr Björnsdóttir 90.)
Hjördís H. Sigurðardóttir (Sólrún Sigvaldadóttir 59.)

Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Hildigunnur Sól Eldjárn
Inga Lára Óladóttir 
Kristín Ósk Óskarsdóttir 
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir 
Sólveig Þórarinsdóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir (3.fl.)
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
(Rakel Lind Ragnarsdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Sextán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sigurrós lék sinn fyrsta leik á Íslandsmóti í þrjú ár. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Guðrún varð fyrsti leikmaður HK/Víkings til að skora þrennu síðan í júlí 2009. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
 
* Þetta var sjöundi mótsleikur HK/Víkings og Álftaness í meistaraflokki kvenna og HK/Víkingur hefur unnið alla. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti mótsleikur er gegn Völsungi á Húsavík laugardaginn 17. júlí kl. 16.30. Strax daginn eftir, sunnudaginn 18. júlí, er leikið við Draupni í Boganum á Akureyri kl. 14.00. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd 1: Sigrinum fagnað í leikslok.
Mynd 2: Guðrún Hermannsdóttir skoraði 3 mörk og sækir hér að markverði Álftaness.
Mynd 3:  Ingibjörg Sigvaldadóttir lagði upp tvö markanna.
Mynd 4: Sigurrós Sigurbjörnsdóttir, fyrrum leikjamethafi HK/Víkings, kom inná í seinni hálfleiknum.
Mynd 5: Kristín Lilja Friðriksdóttir kom inná og lagði upp fimmta markið.
(Myndir: Óðinn)

Frétt af heimasíðu HK