lesa meira

Frá formanni knattspyrnudeildar

20.7.2010

Kæru Víkingar,

Við erum hálfnuð á leið okkar að okkar skýra takmarki árið 2010 sem er að leika í úrvalsdeildinni á næsta ári - árið 2011. Verkefninu miðar vel en það er mikið eftir – 10 mikilvægir og erfiðir leikir þar sem við verðum að nálgast hvern og einn leik sem algeran úrslitaleik. 

Samstaðan er lykilatriði í þessu verkefni okkar – svona verkefni samanstendur af mörgum og ólíkum þáttum sem allir spila sitt mikilvæga hlutverk í teymisvinnunni okkar. Það sem bindur okkur öll saman er ást okkar og væntumþykja um félagið okkar. Við viljum öll gefa Víkingi það sem hann á skilið – bara það besta. Það besta núna er að spila í úrvalsdeildinni árið 2011.

Víkingur og þá um leið allir þeir sem láta sig félagið varða eiga mikil tækifæri, við erum félag með hugarfar sigurvegarans og skýra afrekshugsun, frábæra umgjörð sem er ein sú allra besta á landinu, margar kynslóðir Víkinga sem  við höfum fram yfir liðin í kringum okkur og ekki síst mikinn metnað og ábyrgð sem félagið í hverfinu okkar. Þá er Víkingur er eitt allra heilbrigðasta íþróttafélag landsins fjárhagslega í dag.

Við stöndum á afar traustum grunni – notum þann grunn og stöndum saman í að fara yfir næsta þröskuld sem er að vinna okkur sæti í úrvalsdeildinni að ári og þá standa okkur allar dyr opnar til framtíðar. Það tekst með samstöðu og samheldni, tilfinningum, 100% sigurvilja, einbeitingu og mikilli baráttu jafnt inn á vellinum sem utan. Það verða allir að þekkja sína ábyrgð í verkefninu og gefa allt sitt í þá 10 leiki sem eftir eru.

Við Víkingar höfum alltaf staðið saman þegar mikið hefur legið við – árið 1991 er við tryggðum okkur Íslandsmeistaratitilinn, þar sem þúsundir Víkinga fögnuðu saman suður með sjó er Víkingur vann Víði í eftirminnilegum leik. Víkingar sem þar voru gleyma ekki þeirri stund. Þá fórum við með  þrjár fullar rútur til Keflavíkur 2007 í útileik þar sem mikið lá við. Endurtökum leikinn og sínum þann mikla kraft og styrk sem býr í félaginu.

 

Víkingar – látum hjartað ráða, stöndum saman í blíðu og stríðu. Fjölmennum á næsta leik okkar sem er heimaleikur á móti Fjölni næstkomandi fimmtudag 22. júlí klukkan 20.

Fyllum Víkina og gefum liðinu allan þann stuðning sem það þarf. 

 

Víkingar og allir hverfisbúar - sjáumst á fimmtudagskvöldið í Víkinni

 

Áfram Víkingur

 

Björn Einarsson

Formaður knattspyrnudeildar Víkings