lesa meira

Sigurður: Þær stóðu sig afbragðsvel

23.7.2010

Keflavík sigraði HK/Víking, 2:1, í hörkuleik í 1. deild kvenna á Sparisjóðsvellinum í Keflavík í kvöld. Þetta var lykilleikur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni og nú er ljóst að það verða Keflavík og Þróttur sem komast áfram úr riðlinum en HK/Víkingur getur þó vel við unað í góðri stöðu í þriðja sætinu. Það var Ingibjörg Sigvaldadóttir sem skoraði mark liðsins í kvöld.

Staðan í A-riðli 1. deildar kvenna.

"Mínar dömur stóðu sig afbragðsvel í kvöld. Þær veittu sterku liði Keflavíkur verðuga keppni og við hefðum hæglega getað fengið stig útúr þessum leik," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

Leikið var á nýendurgerðum Sparisjóðsvelli Keflvíkinga við hinar bestu aðstæður og HK/Víkingur byrjaði leikinn af krafti. Keflvíkingar skoruðu hinsvegar úr sinni fyrstu alvöru sókn á 8. mínútu þegar fyrrum landsliðskonan Nína Ósk Kristinsdóttir nýtti sér hik á vörn HK/Víkings og skoraði ein gegn Guðrúnu Önnu í markinu, 1:0.

Mikil barátta var frá fyrstu mínútu og þegar leið á hálfleikinn brá fyrir ágætum spilköflum. HK/Víkingur náði smám saman yfirhöndinni á miðjunni þar sem hin 15 ára gamla Glódís Perla Viggósdóttir skyggði algjörlega á nýja serbneska landsliðskonu í liði Keflvíkinga.

Guðrún Hermannsdóttir fékk besta færið til að jafna eftir rúmlega hálftíma leik en skaut rétt framhjá. Á síðustu andartökum fyrri hálfleiks átti HK/Víkingur síðan flotta sókn þar sem Tinna Óðinsdóttir renndi boltanum inní vítateiginn hægra megin á Ingibjörgu Sigvaldadóttur sem var komin ein gegn markverðinum og skoraði af öryggi, 1:1.

Seinni hálfleikurinn var síðan í járnum allan tímann. Gott spil var í liði HK/Víkings sem átti margar fínar sóknir en vantaði herslumuninn til að skora. Guðrún og Glódís voru næstar því en báðar áttu þær skot í hliðarnetið úr vítateignum.

Þegar 13 mínútur voru eftir af leiknum skoraði Nína sigurmark Keflvíkinga með glæsilegu skoti frá vítateig, óverjandi fyrir Guðrúnu Önnu sem átti afar traustan leik í markinu hjá HK/Víkingi.

Í uppbótartíma mátti ekki muna miklu að HK/Víkingi tækist að jafna en eftir góða sókn og fyrirgjöf frá hægri skaut Tinna framhjá af markteig.

En þrátt fyrir ósigur var þetta virkilega fín frammistaða hjá HK/Víkingsstúlkum sem voru inni í leiknum frá upphafi til enda og léku líklega sinn besta leik í sumar.

Lið HK/Víkings var þannig skipað:

Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir 

Varnarmenn:
Arndís Rós Stefánsdóttir (Berglind Anna Víðisdóttir 77.)
Ingibjörg Björnsdóttir 
Sólveig Þórarinsdóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir 

Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir (Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir 77.)
Glódís Perla Viggósdóttir 
Valgerður Tryggvadóttir 

Framherjar:
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Anna Daníelsdóttir 77.)
Guðrún Hermannsdóttir 
Tinna Óðinsdóttir 

Varamaður:
Margrét Ýr Björnsdóttir 

Meiddar og utan hóps:
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir 
Hildigunnur Sól Eldjárn 
Hjördís H. Sigurðardóttir 
Inga Lára Óladóttir 
Kristín Lilja Friðriksdóttir 
Kristín Ósk Óskarsdóttir 
Lovísa Þorsteinsdóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir 
Sólrún Sigvaldadóttir 
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Rakel Lind Ragnarsdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Fimmtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Heiður lék sinn 120. leik fyrir meistaraflokk HK/Víkings og er nú jöfn Láru Hafliðadóttur í 2.-3. sæti yfir þær leikjahæstu frá upphafi. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
 
* Þetta var 14. mótsleikur HK/Víkings og Keflavíkur í meistaraflokki kvenna. HK/Víkingur hefur unnið 4 leiki, Keflavík 7, og 3 hafa endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti leikur er gegn Þrótti R. á Valbjarnarvelli laugardaginn 7. ágúst kl. 14. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd: Ingibjörg Sigvaldadóttir skoraði í Keflavík.

Frétt af heimasíðu HK