Skráning

Tekið hefur verið í notkun nýtt og glæsilegt skráningaforrit sem ber nafnið Nóri. Nóri er einfalt skráningaforrit sem er beintengt við Borgun sem auðveldar allar kortagreiðslur.

Með þessari nýju skráningarsíðu verða skráningar markvissari, allar upplýsingar um iðkendur svo sem sími og netfang eru eins réttar og þær geta orðið. Þjálfarar geta haldið utan um mætingar iðkenda sinna, stjórnir deilda hafa betra yfirsýn, innheimta verður skilvirkari og allt utanumhald með betra móti en áður.

Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig og fyllir hann þá út allar upplýsingar um sig en símanúmer og netföng berast okkur sem færist sjálfkrafa í gagnagrunn félagsins. Ef netfang eða símanúmer forráðamanns breytist á tímabilinu, þarf hann að breyta því sjálfur inn í Nóra. Nóri - skráningar -og greiðslukerfi