3. fl. karla
29.7.2010

Landsliðsþjálfarinn Óli Jóh. gestaþjálfari hjá 3. flokki karla

Strákarnir í 3. flokki í fótbolta fengu sjálfan landsliðsþjálfarann í knattspyrnu karla, Ólaf Jóhannesson, í heimsókn í Víkina í dag til að stýra lokaæfingu fyrir ferð á Norway Cup í Osló núna á laugardaginn um verslunarmannahelgina.
Landsliðsþjálfarinn messaði yfir strákunum í upphafi æfingarinnar og lét þá síðan taka á því svo um munaði.
Lesa frétt »
25.3.2010

Þrír Víkingar valdir á úrtaksæfingar U17 í knattspyrnu um næstu helgi.

Gunnar Guðmundsson þjálfari U17  landsliðs Íslands í knattspyrnu hafa valið þá Aron Elís Þrándarson, Patrik  Snær Atlason og Jón Rey Jóhannsson á úrtaksæfingarnar sem fram fara um næstu helgi. Alls vour 27 leikmenn valdir á þessar æfingar.


3.3.2010

Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu hjá Víkingi.

Unglingadómaranámskeið hjá Víkingi í Víkinni. Verður haldið mánudaginn 7. mars kl. 19:00 í Víkinni.
Lesa frétt »
17.11.2009

Fimm Víkingar valdir á úrtaksæfingar U17 og U19 í knattspyrnu um næstu helgi.



   
 Jón Reyr Jóhannsson
 Ólafur Ægir Jóhannsson
 Róbert R. Jack

   
 Kári Sveinsson
 Sigurður Egill Lárusson
Gunnar Guðmundsson þjálfari U17 ára landsliðsins í knattspyrnu hefur valið þá Ólaf Ægi Jökulsson, Róbert R. Jack og Jón Reyr Jóhannsson á úrtaksæfingar U17 um næstu helgi. Kristinn R. Jónsson þjálfari U19 hefur valið  Sigurður Lárusson og Kára Sveinsson á úrtaksæfingar  U19 ára sem æfir einnig um næsu helgi.   Lesa frétt »
16.11.2009

3.flokkur karla hausmótsmeistarar.

Víkingar kræktu sér í meistaratitil A-liða þriðja flokks í haustmóti Knattspyrnuráðs Reykjavíkur með því að leggja Fjölni í úrslitaleik í Egilshöll. Okkar menn áttu meira í fyrri hálfleiknum og komust yfir á 28. mínútu þegar Fjölnir sendi boltann í net nafna síns Fjölnis eftir góðan undirbúning Arons Elíss. Lesa frétt »
2.11.2009

Réttholtsskóli tvöfaldur grunnskólameistari

Um helgina fór fram grunnskólamót Reykjavíkur í knattspyrnu.
Skemmst er frá því að segja að lið Réttarholtsskóla sigruðu bæði í pilta og stúlknaflokki. Bæði lið unnu alla sína leiki  og voru sannarlega vel að titlinum komin.  Til hamingju öll saman! 

 
30.10.2009

Uppskeruhátið 3. flokkur karla í knattspyrnu hélt lokafóf í gær.

Glatt var á hjalla í Víkinni í kvöld þegar 3. flokkur sparktíðarinnar 2009 efndi til síðbúins uppskerufagnaðar. Jafnfram skildu leiðir strákanna um sinn því þeir eldri, '93-árgangurinn, eru komnir upp í 2. flokk en '94-strákarnir eru orðnir eldra árið í 3. flokki. sjá nánar á blokgsíðu flokksins - http://vikingarnir.blog.is/blog/vikingarnir/ Lesa frétt »
19.9.2009

Uppskeruhátíð yngri flokka Víkings í knattspyrnu.

http://www.freewebs.com/darngooddog/dog%20open%20arms%20cartoon.gifball.jpg

Uppskeruhátíð yngri flokka Víkings
laugardaginn 19. september kl. 12:15 í íþróttasal Víkings

Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur

Skemmtiatriði

Hljómsveitin Alefli skemmtir

Andlitsmálun

Veitingar frá Bakarameistaranum

Frítt er á leik Víkings og ÍR kl. 14

Lesa frétt »
8.8.2009

Fjórir Víkingar valdir til þátttöku í úrtökumóti KSÍ fyrir árgang 1994

Fjórir Víkingar  eru í hópi 64 stráka víðsvegar að af landinu sem valdir hafa verið til þátttöku í úrtökumóti KSÍ fyrir árgang 1994 sem haldið verður á Laugarvatni um næstu helgi, 14.-16. ágúst.
Það eru þeir Aron Elís Þrándarson, Jón Reyr Jóhannsson, Ólafur Ægir Jökulsson, Patrik Atlason  en þessir strákar eru á yngra ári í 3. flokki.



Lesa frétt »
9.3.2009

Meistardeildin í beinni í Víkinni.

Meistardeildin í beinni í Víkinni.

 Tveir leiki  gangi  þriðjudagskvöldið  10. mars kl. 19:30

Í  veislusalnum  verður  Juventus- Chelsea

Í kjallaranum verður  Liverpool- Real Madrid

Fín sæti í boði og góður félagsskapur.

Hvetjum við stuðningsmenn þessara liða til að mæta klæddir í treyjum síns liðs.