3. fl. kvenna
6.12.2011

Birna og Steinunn á landsliðsæfingar U17.

Þær Birna Borg Gunnarsdóttir og Steinunn Helga Þorsteinsdóttir hafa verið boðaðar á æfingar með U17 ára landsliðinu um næstu helgi.  Þjálfari U17 er Þorlákur Árnason.


  
7.9.2011

Þriðji flokkur kvenna einu stigi frá úrslitakeppni Íslandsmótsins

Þriðji flokkur kvenna hefur lokið keppni á Íslandsmótinu í ár og endaði í öðru sæti í sínum riðli og munaði aðeins einu stigi á að flokkurinn kæmist í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Lesa frétt »
7.4.2011

3.flokkur kvenna byrjar Reykjavíkurmótið vel.



Reykjavíkurmótið er hafið í 3.flokki kvenna og fer það mjög vel af stað. Í fyrsta leik unnum við
Fylki sannfærandi 3-1. Í öðrum leik okkar í mótinu unnum við KR 10-0 og síðan í gærkveldi unnum
við ÍR 8-0.Víkingur er kominn með níu stig og markatalan 21-1. Stelpurnar mæta síðan Val n.k. sunnudag
í leik sem getur skorið út um það hvort liðið mun verða Reykjavíkurmeistari.Valur er með níu stig og svipaða
markatölu og Víkingur.
25.1.2011

Saga valin á landsliðsæfingar U17 kvenna

Saga Guðnadóttir  leikmaður 3. flokks kvenna var valin til að taka þátt í landsliðsæfingum U17 ára lansliðs kvenna. Æfingarnar fara fram um næstu helgi.
Til hamingjum Saga og gangi þér vel.
8.12.2010

Tvær Víkingsstúlkur valdar á úrtaksæfingar U-16

Tvær stúlkur úr Víkingi hafa verið valdar í æfingahóp U-16 um komandi helgi. Þær eru Saga Guðnadóttir og
Steinunn Helga Þorsteinsdóttir.  Til hamingju stelpur og gangi ykkur vel.
16.11.2010

3.flokkur kvenna komnar í úrslitaleik haustmótsins

Síðasti leikur í riðlakeppni haustmóts 3.flokks kvenna lauk í gærkveldi.Víkingur mætti Fylki og lauk
leiknum með sigri Víkings 3-0. Eru stelpurnar því búnar að sigra riðlinn með markatöluna 12-0 sem er
mjög góður árangur. Úrslitaleikur mótsins verður um næstu helgi og munu stelpurnar að öllum líkindum
mæta Val í þeim leik.
16.5.2010

3. fl. kvenna. Eimskipsmótinu lokið.

Síðari keppnisdagurinn á Eimskipsmóti HK/Víkings í 3. fl. kvenna var jafn bjartur og sá fyrri og leikgleðin í fyrirrúmi og keppnisskapið með í för eins og lög gera ráð fyrir. Lesa frétt »
15.5.2010

3. fl. kvenna. Eimskipsmótið hálfnað í góðu veðri.

Það er ekki amalegt að stunda knattspyrnu í þeirri blíðunni sem boðið var upp á í Fossvogsdalnum þennan laugardaginn. HK/Víkingur stendur þessa helgina fyrir móti í 3. fl. kvenna og voru leiknar 10 leikir í tveimur riðlum í dag. Lesa frétt »
11.5.2010

Eimskipsmót 3. flokks kvenna í knattspyrnu fer fram um næstu helgi.

Um næstu helgi er ráðgert að halda hraðmót í 3. fl. kvenna. Um nýlundu er að ræða en mótið er haldið í samstarfi milli HK og Víkings á vegum 2. fl. og mfl. HK/Víkings með góðum liðstyrk 3. flokka hvors félags um sig sem munu verða í baráttunni í mótinu.

Lesa frétt »
3.3.2010

Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu hjá Víkingi.

Unglingadómaranámskeið hjá Víkingi í Víkinni. Verður haldið mánudaginn 7. mars kl. 19:00 í Víkinni.
Lesa frétt »