5. fl. kvenna
2.9.2010

5.fl. kvenna 2010-2011 Byrjar á morgun!

Á föstudaginn hefst nýtt tímabil hjá 5.fl. kvenna. Stelpur fæddar 1999 og 2000 standa saman að 5.fl. á tímabilinu 2010-2011. Fyrsta æfing flokksins verður á morgun (föstudag) kl 15:00 á gervigrasinu í Víkinni. Þjálfari flokksins verður Marteinn Briem.
Æfingatímar flokksins eru til að byrja með:
Mánudagar kl 17:00-18:00
Miðvikudagar kl 16:00-17:00
Föstudagar kl 15:00-16:00

Sjáumst hress á morgun með toppmætingu.!
Marteinn Briem s.8230760
30.8.2010

Takk fyrir helgina. Slit 98 og 99.

Um helgina síðustu tóku A og B lið þátt í úrslitakeppni Íslandsmótsins. A liðið gerði tvö markalaus jafntefli við KA og Val á laugardegi á meðan B vann KA en tapaði fyrir Val. Á sunnudeginum sýndi A-liðið sínar bestu hliðar og sigraði seinasta leikinn gegn Sindra 6-1 á meðan B-liðið þurfti að sætta sig við jafntefli við Stjörnuna 1-1. Bæði lið enduðu í 2. sæti í sínum riðli og þykir mér það mjög gott, en að vísu grátlegt hversu nálægt úrslitaleiknum bæði lið voru.
A-liðið var frekar heppið að halda út fyrri hálfleikinn á móti KA, seinni hálfleikuirnn var mun skárri en jafnteflið var tekið fegins hendi, líklega hefði KA sigur verið sanngjarn. B-liðið sýndi hinsvegar frábæra takta á móti KA og sigraði 2-0 verðskuldað og átti ekki í teljanlegum vandræðum með andstæðinginn þó staðan væri jöfn lengi vel. A-liðið spilaði ágætis leik á móti sterku Valsliði sem lauk einnig með markalausu jafntefli. Bæði lið fengu fá marktækifæri en miðjuspil beggja liða var mjög gott ásamt varnarleik. Líklega voru úrslitin sanngjarnt jafntefli þó bæði lið hefðu fengið sénsa til að stela sigrinum á lokamínútunum. B-lið Vals spilaði líklega sinn besta leik á móti okkur og leyfðu okkar B-liði að komast lítt áfram á spili sínu sem hefur verið aðall liðsins í sumar. Leikurinn þróaðist alltaf lengra frá því að vera knattspyrnuleikur yfir í handboltaleik. Margar aukaspyrnur voru dæmdar og tókst Valsörum að skora úr einni slíkri. Í heildina voru Valsarar líklega betri aðilinn þó svo að hvorugt lið hafi fengið mörg marktækifæri, leiknum lauk með 2-0 sigri Vals. Víkingar þurftu þá að treysta á hagstæð úrslit á milli KA og Vals á sunnudeginum ásamt því að klára sína leiki. A-liðið kom vel frá sunnudagsverkefninu, þvílíkur leikur á móti Sindra. B-liðið var líklega ennþá svekktar með tapið daginn áður og gerðu sér líklega grein fyrir því að mikla heppni þurfti til þess að komast í úrslitaleikinn. Fyrir vikið komst Stjörnuleikurinn aldrei í gang hjá okkar stelpum og lauk með 1-1 jafntefli.

Víkingar geta státað af því að eiga A og B lið sem luku keppni í 3-4. sæti í 5.fl. kvenna. Stelpurnar geta því borið höfuðið hátt, og sjá augljóslega hversu stutt er í toppinn. Markmiðið og viðmiðið fyrir komandi ár fyrir 98-99 hópinn settu stelpurnar sjálfar með árangrinum um helgina.

Því miður var ekki úrslitakeppni í C og D liðum hjá KSÍ, einhverra hluta vegna. C-liðið mátti þola svekkjandi töð í sumar á móti ÍBV, Stjörnunni og HK í leikjum þar sem við vorum alltaf betri aðilinn. Ef þessir leikir sem töpuðust allir með einu marki og margir á lokamínútunni hefði endað öðruvísi hefði C-liðið verið mun ofar í töflunni en raun bar vitni. Miklar mannabreytingar í liðinu milli leikja höfðu líka mikil áhrif en alls spilaði 21 stelpa einn leik eða fleiri með C.
D-liðið átti mjög stöðugt Íslandsmót. Leikirnir við Blika og Stjörnuna voru mjög góð viðmið fyrir liðið því það virtist alltaf vera nýtt lið í hvert skipti sem spilað var við Valsara. D-liðið getur líka verið mjög ánægt með sína leiki sem voru að jafnaði mest spennandi af öllum leikjum flokksins. Flestir enduðu jafnt eða með eins marks mun.

Á morgun er æfing kl 16:00. Þjálfari frá KSÍ kemur í heimsókn að mæla knatttækni flokksins!. Þegar því lýkur ætlum við að spila aðeins :)

Á miðvikudaginn er lokahóf flokksins. Stelpurnar mæta ásamt foreldrum kl 17:00 í Víkina og spila leik við foreldra. Gríðarlega mikilvægt að taka foreldra með sér!!!
kl 18:15 er svo haldið inn í hátíðarsal og snæddar dýrindis pizzur og þar með lýkur 5.flokk formlega og nýr tekur við.

Stelpur sem fæddar eru árið 2000 og eru að ganga upp úr 6.flokk mega að sjálfsögðu mæta á þriðjudaginn kl 16:00 og taka þátt í þrautunum og spilinu eftir það. Miðvikudagurinn er hins vegar eingöngu ætlaður 98 og 99. Að lokum vil ég biðja þær stelpur afsökunar á æfingarótinu síðustu vikuna og ennfremur biðja stelpurnar um að hlusta vel á þjálfarann og fylgjast með hérna á netinu.

kv, Marteinn s.8230760
25.8.2010

Vikan hjá 5.fl. kv

Í dag ætlum við að spila við strákana eins og í gær. Leikur kl 16:00 mæting 15:45. Þær sem eru ekki að spila mæta á æfingu kl 16:00. 2000 stelpurnar mæta líka í dag.
Á morgun (fimmtudag) er svo æfing kl 16:00 fyrir alla.
Á föstudaginn er frí.
Um helgina eru A og B lið að spila í úrslitakeppni á Akureyri, farið verður með einkabílum og er mæting í síðasta lagi kl 22:00 til Akureyrar.
Fyrsta æfing eftir helgi verður á þriðjudaginn kl 16:00
22.8.2010

Næsta vika

Fossvogssmót HK fór fram á laugardaginn og gekk það mjög vel, tveir bikarar komu í hús í B og C liðum og auk þess unnu Ástrós og Eyvör skalla á milli keppnina og Stefanía halda á lofti keppnina.

Á morgun, mánudag, er æfing kl 17:00. Skólinn er byrjaður og nýtt plan komið í gang. Hugsanlega verða 2000 stelpurnar með okkur á æfingum þessa vikuna en 98 stelpurnar ganga ekki upp í 4. flokk fyrr en í byrjun september.

A og B liðin unnu sér sæti í úrslitakeppninni næstu helgi, en það er enn óvíst hvar riðillinn okkar verður spilaður, mér finnst mjög líklegt að það verði einhversstaðar á landsbyggðinni frekar en á höfuðborgarsvæðinu. Fylgist vel með á http://www.ksi.is/mot/motalisti/?flokkur=420&tegund=61&AR=2010&kyn=0

Því miður er engin úrslitakeppni hjá KSÍ í C og D liðum vegna þátttöku, þar er spilaður stakur úrslitaleikur í stað riðils og okkur tókst ekki að ná 1. sætinu í okkar riðli og því keppum við ekki þennan úrslitaleik.

Stefnt er að því að halda lokahóf flokksins í byrjun september, fylgist vel með.
20.8.2010

Fossvogsmótið í fyrramálið!

Á morgun er Fossvogsmótið, skipt var í lið á æfingu áðan. Leikjum lýkur um kl 14:00 með grillsveislu, síðan hefst landsleikur Íslendinga og Frakka kl 16:00 á Laugardalsvelli.
A-lið mætir kl 8:30
B-lið mætir kl 9:00
C-lið mætir kl 9:00
D-lið mætir kl 9:30

Leikjaplan hefur verið sent með tölvupósti á foreldra.
Á mánudaginn koma stelpur fæddar 2000 á sína fyrstu æfingu með 5.fl. Æfingin er ekki á sama tíma og venjulega, ég bara er búinn að steingleyma hvenær hún er :) Stelpur fæddar 1998 æfa ennþá í nokkrar vikur í viðbót með 5.flokki því A og B lið komust í úrslitakeppni sem er líklega haldin næstu helgi. Endilega taka þann tíma frá kæru foreldrar.

Sjáumst hress í fyrramálið í Fagralundi (HK-svæðinu)
kv, Marteinn 8230760
17.8.2010

Æfing í dag 15:15!

Það verður æfing á eftir kl 15:15 fyrir C og D lið. A og B eru að keppa á ÍR velli. Marteinn tekur æfinguna að hluta til en Jón og Viktor eru með leikina.
Á morgun eru svo leikir í C og D við Valsara kl 13:00. Síðan er æfing kl 15:15 fyrir alla, C og D mæta líka á æfingu eftir leikinn sinn, því við þurfum að raða í lið fyrir fimmtudaginn en þá keppa A, B og D.
A spilar kl 16:00 við Fram
B spilar kl 16:50 við Fram
C spilar kl 16:30 við HK

A og C mæta á sama tíma, kl 15:30 þó svo að C-liðið byrji sinn leik seinna en A-liðið. B lið mætir kl 16:20. Allir leikir eru í Víkinni.

Á föstudaginn er æfing kl 12:30. Á henni verður raðað í lið fyrir Fossvogssmótið sem verður haldið daginn eftir á HK svæðinu. Leikið verður á laugardeginum frá kl 9:00 til 13:30. Nánar auglýst síðar.
15.8.2010

Vikan framundan, nóg að gerast!

Á mánudaginn eru leikir hjá C og D liði. Liðin voru tilkynnt á föstudagsæfingunni, þær sem ekki voru mættar þar verða að hafa samband ef þær hafa áhuga á að spila.
C-lið á að spila kl 16:00 á Tungubökkum sem eru aðeins lengra en Mosfellsbær. Mæting 15:30 þangað. ATH upplýsingar á KSI.is eru ekki réttar.
D-lið á að spila kl 17:50 við Blika í Kópavogi. Mæting 17:20 í Fífuna en mögulega verður leikurinn spilaður á Smárahvammsvelli neðst í dalnum. Jón verður með þennan leik. s. 616 1626
A og B mæta á æfingu á mánudaginn kl 15:15.

Á þriðjudaginn eru leikir hjá A og B á sama tíma, kl 16:00 á ÍR velli. Liðin voru tilkynnt á föstudeginum. Mæting 15:30.
C og D verða mjög líklega á æfingu kl 15:15 á þriðjudeginum.
Á miðvikudag eru leikir hjá C og D á sama tíma í Víkinni kl 13:00 við Valsara. Mæting 12:30 og síðar seinna um daginn er æfing hjá A og B kl 15:15.
Á fimmtudaginn eru leikir hjá A, B og D. Tímasetningin er aðeins óljós, fylgist vel með.
Á föstudaginn er svo æfing kl 12:30

Á laugardaginn er svo Fossvogsmótið. Við erum með skráð 4 lið á mótið, en það virðist vera mjög dræm þátttaka og því gæti mótið fallið niður. Þennan dag er einnig stærsti leikur kvennaknattspyrnunnar á Íslandi frá upphafi og algjör skylda að mæta á völlinn.
10.8.2010

Æfing í dag kl 14:30, leikur í meistaradeild kvenna

Í dag verður æfingin í fyrra fallinu vegna þess að það er leikur kl 16:00 í Víkinni í Meistaradeild kvenna. Við megum ekki vera með æfingu á sama tíma og leikurinn er í gangi og því höfum við hana kl 14:30. Eftir æfingu fjölmennum við svo á leikinn og horfum á þær bestu í Evrópu.

Á miðvikudaginn eru leikir í A, B og D liðum. C-lið mætir á æfingu kl 14:00.
A-lið spilar kl 14:00
B-lið spilar kl 15:00
D-lið spilar kl 15:00
Alltaf mæting 30 mín fyrir leik eins og venjulega.
5.8.2010

Sigló!

Liðin á Sigló voru tilkynnt áðan á æfingu. Klukkan 11:00 er hurðinni læst á skólastofunni til að trufla ekki svefn. Þær sem koma eftir þann tíma gista með foreldrum fyrstu nóttina. ATH! Heimsfrægur Bert-lestur hefst kl 22:30, gríðarlega mikilvægt að missa ekki af því. Því miður kemst ég ekki með norður vegna leikja og æfinga hjá sjálfum mér en í staðinn fer Anna Dan með stelpunum norður auk Jóns og Viktors. Anna hefur verið með okkur á æfingum undanfarið og þekkir vel til stelpnanna.

Fyrsta æfing eftir Sigló verður strax á mánudaginn því það er þétt leikjaprógram framundan í Íslandsmótinu.

Gangi ykkur vel fyrir norðan og að lokum gott ráð til foreldra, snúið ykkur frá vellinum ef spennan er of mikil. Tjaldstólar eru einnig mjög róandi :)

Marteinn s. 823 0760
Jón Arnar s. 616 1626
21.7.2010

Reycup, vikurnar framundan og uppgjör Símamótsins

Á morgun hefst Recyup. Þar spilum við sem 4. flokkur kvenna C 7 manna. Ástæðan er sú að léleg skráning var í þennan riðil mótsins og voru Víkingar beðnir um að fylla í það sæti. Því miður eiga ekki allar stelpurnar að mæta þar sem þetta er bara eitt lið. Liðið var tilkynnt á æfingu áðan. Fyrsti leikur er kl 8:00, mæting 7:30 í  fyrramálið. Nánari dagskrá og leikjaniðurröðun mótsins má finna á www.reycup.is

Á morgun er seinasta æfing fyrir frí kl 15:15. Nú förum við í 12 daga frí eða fram til 3. ágúst. Við tökum æfingu á þriðjudag og miðvikudag og síðan er haldið til Siglufjarðar á fimmtudeginum.

Við þjálfararnir erum þokkalega ánægðir með gang mála á Símamótinu, með smá heppni og örlítið meiri gæðum hefðum við klárlega náð í fleiri medalíur :)
Við ákváðum að taka saman nokkur orð fyrir hvert lið til að hugsa um því það er ekki hægt að tala um þetta á æfingu því það eru svo margir staddir úti á landi.

A-lið:
Fór rólega af stað í fyrsta leik en landaði mikilvægum sigri á seinstu mínútu leiksins gegn sterku liði Þórsara. Lokamínúturnar gáfu góða fyrirheit um framhaldið. Eftir Fjölnisleikinn voru stelpurnar öruggar áfram en engu að síður spiluðu þær frábærlega í leik á móti Blikum um fyrsta sæti rðilsins. 8-liða úrslitin voru svo mikið svekkelsi þegar í ljós kom að liðið tapaði á hlutkesti. Daginn eftir var barist um 5-8. sæti en stelpurnar höfðu ætlað sér stærri hluti en það í þessu móti. Áherslubreytingar í uppspili liðsins kostuðu sitt í þeim leikjum en uppskáru einnig flotta kafla inná milli sem voru vel þess virði. Víkingar voru augljóslega mun hæfileikaríkari en andstæðingar þeirra á sunnudeginum þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki fallið okkar megin. 8. sætið varð niðursstaðan en mótið sýndi að liðið verður að teljast mjög sigurstranglegt á öðrum mótum síðar á árinu eða á komandi árum, stelpurnar vita það best sjálfar.

B-lið
Byrjaði á erfiðum leik gegn Blikum þar sem liðinu tókst ekki að kalla fram sinn besta leik, fyrri hálfleikurinn var okkur mjög þungur enda vörðumst mið mikið á eigin vallarhelmingi. Síðan tók við skyldusigur á Haukum en var hann að mínu mati frekar tæpur. Eftir það tóku við þrír jafnteflisleikir í riðlinum og mátti B-liðið teljast mjög heppið að komast í 8-liða úrslit á hlutkesti. Liðið hafði ekki náð að að stimpla sig almennilega inná mótið fyrr en á sunnudeginum því 8-liða leikurinn tapaðist gegn sterku liði Fylkis. Á sunnudeginum unnust allir leikir liðsins og endaði B-liðið í 5. sæti. Miðju og kantspilið gekk mjög vel hjá B-liðinu en mikið vantaði uppá skot og mörk. Of margar sóknir runnu út í sandinn án þess að skotið var á markið, það kostaði sitt því það er mun erfiðara að spila inní mark andstæðinganna heldur en að skjóta þegar maður er kominn að vítateignum.

C-lið
Fyrsti leikurinn gegn Fylki var slakasti leikur liðsins frá upphafi og verður það líklega forever, best að skrifa sem minnst um þann leik :).  Leikur liðsins snarbatnaði í næsta leik gegn sterku liði Skagamanna og lagði jafntefli í þeim leik upp algjöran úrslitaleik morguninn eftir gegn Afturleldingu um sæti í 8-liða úrslitum. Sá leikur vannst en jafntefli gegn Kelfavík í lokaleik hefði mögulega getað eyðilagt möguleika liðsins á 8-liða úrslitum. Heppnin var með liðinu því það endaði sem stigahæsta liðið í 3.sæti í sínum riðli. Á sunnudeginum gerði liðið svo tvö jafntefli í mjög jöfnum leikjum þar sem liðið spilaði skínandi fótbolta. Liðið endaði í 5-6. sæti með Stjörnunni. Stelpurnar í C spiluðu nánast einungis jafna leiki og fengu fullt útúr þessu móti, spilið var mestmegnis mjög gott sérstaklega nálægt marki andstæðinganna en það voru smá vandræði með að spila útúr pressu úr okkar eigin vörn. Úthald og meiðsli tóku sinn toll á liðinu því mjög margar voru að biðja um skiptingar vegna eymsla og þreytu, stundum er alveg hægt að harka af sér! :) Annars var dugnaðurinn í liðinu til fyrirmyndar.

D-lið
Snillingarnir. Fyrsti leikurinn við Blika 2 gaf frábær fyrirheit, leikurinn vannst í seinustu spyrnu leiksins, þar var að verki, markaskorari mótsins, Maren. Síðan tók við hver hörku leikurinn á eftir öðrum. Meirihluti leikjanna féll okkar megin enda var liðið að spila frábæran bolta, boltinn færðist vel á milli leikmanna liðsins í gegnum Eddu (Xavi) Katrínu í felstum tilvikum. Likylsigurinn var gegn Fylki í seinasta leik laugardagsins sem fór langleiðina með að tryggja úrslitaleikinn. Á sunnudeginum tókst liðinu að tryggja sér úrslitaleikinn með naumum sigri á Keflavík. Liðið hafði lokið riðlakeppni með 4 sigra, 2 jafntefli og eitt tap. Úrslitaleikurinn var við KA sem höfðu fram að þessu unnið öll lið í riðlinum nema eitt jafntefli (sem var auðvitað gegn Víkingi). Víkingar vörðust gríðarlega vel og nýttu sín sóknarfæri fullkomlega. Mikill karakter var í liðinu og fögnin glöddu alla áhorfendur í Kópavoginum. Liðið einfaldlega blómstraði og hver leikmaðurinn á eftir öðrum sýndi á sér nýjar hliðar.
Eftir stendur bikarinn verðskuldaður í okkar höndum :) Við þjálfarar höfum ákveðið að fela þeim leikmönnum sem tóku þátt í leikjum D-liðsins á mótinu að geyma bikarinn næstu vikurnar. Það verður gert þannig að stelpurnar fá að vera með bikarinn í tvo til þrjá daga í senn og afhenda síðan bikarinn áfram og koll af kolli. Bikarinn verður afhentur þeirr fyrstu á æfingu á morgun. Ef ykkur vantar símanúmer hjá leikmönnum liðsins til að láta bikarinn ganga á milli er ekkert mál að hafa samband við mig (823 0760)og ég kem ykkur í samband við viðkomandi. Leikmenn liðsins voru: Vala, Tekla, Maren, Margrét Ása, Birna Rún, Valgerður, Edda Katrín og Ingibjörg.

Það er náttúrulega algjör skylda að koma heim með a.m.k. eina dollu af hverju móti! Til hamingju Víkingar.