Fyrsta skíðaferðin orðin staðreynd
Um síðustu helgi fór hópur krakka á skiði til Akureyrar á vegum Skíðadeilar Víkings.
Farið var seinnipart föstudags og komið heim á sunnudagskvöld.
Þetta voru krakka 12 ára og uppúr. Aðstæður voru í lagi og það náðist að skíða mikið.
Á laugardeginum var mjög mikið skíðað en á sunnudaginn voru 4 snjóblasarar í brekkunni sem krakkarnir voru að skíða í. Það og lítið skyggni ásamt grárri birtu og færi sem var mjúkt, hart, mjúkt, hart, mjúkt... gerði aðstæður á sunnudeginum ekki voða skemmtilegar. En krakkarnir eru komnir á skíði og það er fyrir öllu.
Stefnan er að nota alla frídaga fram að jólum til að skíða þar sem hægt er að skíða. Þannig er stefnan að fara aftur til Akureyrar næstu helgi.