lesa meira

Skiðun á Akureyri

Þessa dagana streyma iðkendur 12 ára og eldri norður á Akureyri á skíði og stefnan er að dvelja þar meira og minna fram að jólum.  Skipulagðar æfingar eru fyrir þennan aldursflokk.
Um helgina verður Dagnýjarmótið haldið en það er Fis mót fyrir 15 ára og eldri.

Við hvetjum fólk til að fara á skiði og ef yngri krakkar en 12 ára (þó ekki þeir allra yngstu) eru á svæðinu þá er bara að hitta á þjálfarana okkar þá Tóta eða Ånen uppá að fá að taka æfingu. 
En svona í byrjun vetrar er aðalatriðið að skíða frjálst til að rifja upp hvernig þetta virkar alltsaman.