lesa meira

Mótahaldi frestað sem átti að fara fram um helgina

Báðum þeim mótum sem áttu að fara fram um helgina skv mótatöflu hefur verið frestað.

Vegna snjóleysis verður að fresta Reykjavíkurmótunum tveimur, í flokki 9-12 ára, sem halda átti um næstu helgi á vegum ÍR og  KR.  Ekki hefur verið tekin ákvörðun um ný dagsetning fyrir mótið en hún verður kynnt seinna.

Bikarmóti í flokki 13.-14. ára í alpagreinum sem fram átti að fara helgina 30.-31. janúar á Dalvík/Ólafsfirði hefur verið frestað um viku vegna slæmra aðstæðna. Veður hefur verið skíðafólki óhagstætt að undanförnu.
Mótið verður haldið á Dalvík / Ólafsfirði 6.-7. febrúar