Skálaferð
Sælir foreldrar og skíðakrakkar
Okkur langar til að fara að
vígja skálann okkar þennan veturinn þó að enginn sé snjórinn ennþá. Spurningin
er bara að gera gott úr hlutunum og fara að dansa snjódansinn.
Við ætlum
semsagt að gista í skálanum frá laugardeginum 6 febrúar til sunnudags. Mæting kl
11 á laugardegi og farið heim kl 14 á sunnudegi.
Ferðin er skipulögð fyrir 8
ára og yngri (Dagmarar hópur) og 9 til 12 ára (Stebba hópur). Allir iðkendur 12
ára og yngri og foreldrar þeirra eru velkomnir í þessa ferð. Stefnan er að
þjappa hópinn saman og að æfa. Við þjálfararnir væntum þess að flestir
krakkarnir í þessum hópum mæti. Víkingur hefur ávallt verið sterkt lið með góða
liðsheild, markmið okkar er að halda því starfi áfram, en til að skapa gott lið
þarf að byggja góðann grunn, þ.e.a.s yngri deildar starfsemi innan félagasins.
Við viljum því bjóða nýliða í félaginu sérstaklega velkomna í þessa ferð.
Okkar frábæra foreldrafélag ætlar að skaffa mat, kostnaði er ávallt
haldið í lágmarki en verðið er 1000 kr. það sama og hefur verið undanfarin allavega 10 ár.
Barnið þarf því ekki að taka með sér neinn mat í ferðina.
Krakkarnir þurfa að taka með sér svefnpoka eða sæng, viðeigandi fatnað og
góða skó. Ef það verður einhver snjór eiga allir sem geta koma með sleða eða
gönguskíði.
Það þarf að skrá krakkana í þessa ferð fyrir föstudag svo
að hægt sé að kaupa inn og gera ráðstafanir fyrir svo stóran hóp mep tölvupósti
eða sms í síma 8612209.
Mig langar til að gera ratleik með
krökkunum á sunnudaginn er eitthvert foreldri sem hefur reynslu af svona leik og
getur komið með góðar hugmyndir. Endilega sendu þær þá á mig á
dys2209@gmail.com kv.
Dagmar
Í þessum ferðum er hefð fyrir því að það séu foreldrar sem sjá um
krakkana ásamt þjálfurum. Það vantar tvenna foreldra í það verkefni um helgina
og bið ég því ykkur um að láta Júlíu 8681222 eða Dagmar 8612209 vita fyrir
fimmtudag ef þið eruð tilbúin að leggja hönd á plóginn.
Mikið
hlakka ég til að hitta alla flottu skíðakrakkana í skálanum okkar. Stefnan er að
hafa gleði og gaman.
Hér er dagskráin
laugardagur 6 feb.
2010
Mæting kl 11
æfing úti frá 12:30-14:30. Fjallganga og
jafnvægisæfingar ofl. þrek
frjáls tími til 16.
hvatningarfundur 16 til
17
kvöldmatur
kvöldvaka
kósý tími fyrir foreldra
Dagskrá 7
feb.
ratleikur
heimferð kl 14