Skíðaskálinn Hengill er til útleigu allt árið um kring fyrir félagssamtök,
vinnuhópa, skóla og alla aðra sem áhuga hafa. Skálinn sem er nýr og
stórglæsilegur er í eigu skíðadeilda ÍR og Víkings. Hann rúmar í allt 90 manns
í gistingu og þar er mjög góð eldunaraðstaða og tveir góðir matsalir sem hægt
er að opna á milli. Upplýsingar um útleigu í símum 5877080 ÍR og 5813245
Víkingur eða
skalanefnd@gmail.com