Tennis
2.3.2010

Rafn Kumar sigursæll á Stórmóti Tennissambands Íslands

Rafn Kumar Bonifacius, tennismaður Víkings árið 2009, átti mikilli velgengni að fagna á Stórmóti Tennissambands Íslands sem fram fór um helgina. 
Lesa frétt »

Rafn Kumar í 5.sæti Meistaraflokk á Jóla-Bikarmótið Tennissambandsins

Rafn Kumar Bonifacius, Víkingi, vann þrír keppendur og kláraði í 5.sæti á Jóla-Bikarmótið Tennissambandsins um helgina.  Hann vann Íslandsmeistari í U14 - Kjartan Pálsson (TFK) 60,63;  Íslandsmeistari í +30 Rúrik Vatnarsson (Víkingi) 62,75; og landsliðsmaðurinn Eiríkur Magnússon (TFK) 61,62 áður en hann tapaði fyrir Andri Jónsson (BH) 61,62.  Honum tókst að vinna gull í Meistaraflokk tvíliða þegar hann og Kjartan lagði Vladimir Ristic (TFK) og Hinrik Helgason (TFK), 61,61. 

Vel heppnuð úrslit á Víkingsmótinu í tennis

Hið árlega Víkingsmóti kláraðist í gær með Víkingssigri í bæði einliða og tvíliða. Raj Bonifacius vann fyrstu einliða undanúrslitin á móti Luis Rabelo (Tennisfélag Hafnafjörðs) 6-0, 6-0 og Davíð Halldórsson (Tennisfélag Kópavogs) vann Rafn Kumar Bonifacius 6-2,6-3 í hinum undanúrslitunum. Raj vann síðan úrslitaleikinn á móti Davíð 6-0,6-2. Rafn Kumar tók bronsið með 6-0,1-0 sigur yfir Luis. Víkingurinn og sumarþjálfarinn - Alexander Jóhannsson (sjá mynd), gekk mjög vel á mótinu og komst í 8.manna riðil í einliða með sigur á móti Bjarka Sveinssyni (Umf.Fjölnis) og Óskari Scheving (Tennisfélag Kópavogs).
Í tvíliða gekk allt í sómanum þar sem Rafn Kumar og Raj unnu Davíð og Podolskaia (Umf.Fjölnir) í úrslitaleik 9-6. Þetta er þriðja árið í röð sem Raj vinnur einliðaleiksmótið og annað árið sem feðgarnir taka titilinn í tvíliða.

Rafn Kumar Íslandsmeistari U16

Rafn Kumar Bonifacius sýndi mikla takta á Íslandsmeistaramótinu í tennis sem fór fram í Víkinni og við Tennishöllina í Kópavogi nú um helgina.

Rafn Kumar, sem verður 15 ára á árinu, varð Íslandsmeistari í flokknum 16 ára og yngri þegar hann lagði Ástmund Kolbeinsson (Víking) 6-0, 6-1 í úrslitaleik. Rafn Kumar keppti einnig í flokknum yngri en 18 ára þar sem hann tryggði sér þriðja sæti eftir sigur á Luis Rabelo (BH) 6-1, 6-1, og í meistaraflokki þar sem hann komst í átta manna úrslit.

Rafn Kumar er nú á leið til Aþenu þar sem hann mun keppa fyrir hönd Reykjavíkur á Borgarleikunum en síðar í sumar verður hann einn af fulltrúum Íslands á Ólympíuleikum æskunnar sem fram fara í Finnlandi.

Raj K. Bonifacius með silfur í tvíliðaleik á HM öðlinga

Raj K. Bonifacius og Alex Lindholm (Finnlandi) töpuðu fyrir  nr. 2 Manfred Hundsdorfer (Austurríki) og Bart Theelen (Hollandi) 6-4,6-7,6-4 í úrslitaleik á heimsmeistaramóti öðlinga í tvíliða á Font de Cala, Mallorca í gær. 
 
Raj vann  Pietro Campi (Ítalía) 6-1,6-2  og Michael Russell (Ástralía) 6-2,6-3 áður en hann tapaði fyrir Christophe Bloemke (Þýskalandi) 6-4,6-2 í 3.umferð í einliðaleik.