Tennis
7.6.2010

Tennisskóli fyrir börn í sumar

Tennisdeild Víkings verður með tennisnámskeið fyrir krakka 5-13 ára.  Námskeiðin fara fram á tennisvöllum Víkings á eftirfarandi tímabili -
Námskeið 1 / 14.-25. júní
Námskeið 2 / 28. júní-9. júlí
Námskeið 3 / 12.-23. júlí
Námskeið 4 / 26. júlí- 7. ágúst
Námskeið 5 / 9.-20.ágúst

Skráning á www.tennis.is

Aðalfundur Tennisdeildar Knattspyrnufélagsins Víkings



Aðalfundur Tennisdeildar Knattspyrnufélagsins Víkings verður haldinn í Víkinni mánudaginn 4. maí 2010, kl. 19:00

Dagskrá:

 

1.  Venjuleg aðalfundarstörf.

2.  Önnur mál.

Stjórnin.

Rafn Kumar sigursæll á Stórmóti Tennissambands Íslands

Rafn Kumar Bonifacius, tennismaður Víkings árið 2009, átti mikilli velgengni að fagna á Stórmóti Tennissambands Íslands sem fram fór um helgina. 
Lesa frétt »

Rafn Kumar í 5.sæti Meistaraflokk á Jóla-Bikarmótið Tennissambandsins

Rafn Kumar Bonifacius, Víkingi, vann þrír keppendur og kláraði í 5.sæti á Jóla-Bikarmótið Tennissambandsins um helgina.  Hann vann Íslandsmeistari í U14 - Kjartan Pálsson (TFK) 60,63;  Íslandsmeistari í +30 Rúrik Vatnarsson (Víkingi) 62,75; og landsliðsmaðurinn Eiríkur Magnússon (TFK) 61,62 áður en hann tapaði fyrir Andri Jónsson (BH) 61,62.  Honum tókst að vinna gull í Meistaraflokk tvíliða þegar hann og Kjartan lagði Vladimir Ristic (TFK) og Hinrik Helgason (TFK), 61,61. 

Vel heppnuð úrslit á Víkingsmótinu í tennis

Hið árlega Víkingsmóti kláraðist í gær með Víkingssigri í bæði einliða og tvíliða. Raj Bonifacius vann fyrstu einliða undanúrslitin á móti Luis Rabelo (Tennisfélag Hafnafjörðs) 6-0, 6-0 og Davíð Halldórsson (Tennisfélag Kópavogs) vann Rafn Kumar Bonifacius 6-2,6-3 í hinum undanúrslitunum. Raj vann síðan úrslitaleikinn á móti Davíð 6-0,6-2. Rafn Kumar tók bronsið með 6-0,1-0 sigur yfir Luis. Víkingurinn og sumarþjálfarinn - Alexander Jóhannsson (sjá mynd), gekk mjög vel á mótinu og komst í 8.manna riðil í einliða með sigur á móti Bjarka Sveinssyni (Umf.Fjölnis) og Óskari Scheving (Tennisfélag Kópavogs).
Í tvíliða gekk allt í sómanum þar sem Rafn Kumar og Raj unnu Davíð og Podolskaia (Umf.Fjölnir) í úrslitaleik 9-6. Þetta er þriðja árið í röð sem Raj vinnur einliðaleiksmótið og annað árið sem feðgarnir taka titilinn í tvíliða.