Æfingar
Vetraræfingar - Tennisskóli Íslands

Tennisæfingar verða á vallarsvæði Víkings í vetur. Boltar og spaðar eru skaffaðir fyrir iðkendur. Börn verða að klæða sig eftir veðri. Þjálfari er Raj Bonifacius.
Fyrsta tímabilið er frá 29.ágúst - 29. september.

Hægt er að skrá sig á www.tennis.is og í síma 820-0825.

TENNISSKÓLI VÍKINGS
Tennisdeild Víkings verða með tennisnámskeið bæði fyrir byrjendur og ungt afreksfólk. Tennisnámskeiðin fara fram á tennisvöllum Víkings við Traðarland í Fossvogsdal og í íþróttahúsi Fossvogsskóla, þegar veðrið er óhagstætt. Byrjendur kynnast grunnatriðum tennis¬íþróttar¬innar í formi léttra æfinga og leikja. Krakkar sem ljúka tveggja vikna námskeiði læra „Míni Tennis“ sem er grunnstigsleikur fyrir byrjendur. Einnig helstu reglur í tennis og hvernig á að telja í tennisleik. Þá verða kynntir hinir vinsælu tennisleikir „Grípleikur“, „Rúlló“, „Hring í kring um jörðina“ og „Rússi.“ Að auki munu krakkarnir efla augn-handa samhæfileika í gegnum létta leiki eins og hafnarbolta og bandarískan fána-fótbolta. Tennisskólinn útvegar spaða á námskeiðunum. Námskeiðin eru haldin virka daga kl. 9-12 og 13-16. Öll börn í tennisskólanum fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Í lok hvers námskeiðs er haldin pylsuveisla. Námskeiðsgjald er 14.000 kr – WILSON tennisspaða innif. Veittur er 20% systkinaafsláttur og 25% afsláttur ef sótt er um fleiri en eitt námskeið. Mögulegt er að skrá þátt¬takendur viku í senn. Þá kostar vikan 9.000 kr. Krakkarnir mæta í íþróttafatnaði og með nesti. Hægt að skrá sig www.tennis.is eða í síma 820-0825.

Námskeið 1 9.-13.júní fimm daga
Námskeið 2 23.júní – 4.júlí
Námskeið 3 7.-18.júlí
Námskeið 4 21.júlí - 1.ágúst
Námskeið 5 5.-15.ágúst


Námskeið fyrir fullorðna (byrjendur og lengra komna) kl. 18:30-19:30, mánudaga til fimmtudaga.

Sumaráskrift
Tennisklúbbur Víkings er með frábært verð á sumaráskriftarkortum fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Kortin gilda frá 15.maí til 31.ágúst. Einstaklingskort kosta 7.000 kr. Fjölskyldukort 10.000 kr.


Nokkrar dagar fráteknir vegna móta:

• 13.-15.júní Víkings 100 ára mót
• 16.-22.júní Evrópumót U14
• 25. júní Miðnætturmót
• 8.-12. ágúst Íslandsmót

Stakur vallartími eru á 2.000 kr. (1,5 klukkutímar í senn).

Vallarpöntun tekin í síma 820-0825

Skráning fer fram hjá Raj í síma 820-0825 sem einnig veitir nánari upplýsingar. Einnig hægt að skrá sig á www.tennis.is eða á tölvupóstfanginu tennis@tennis.is