lesa frétt

Rafn Kumar Íslandsmeistari U16

15.6.2009
Rafn Kumar Bonifacius sýndi mikla takta á Íslandsmeistaramótinu í tennis sem fór fram í Víkinni og við Tennishöllina í Kópavogi nú um helgina.

Rafn Kumar, sem verður 15 ára á árinu, varð Íslandsmeistari í flokknum 16 ára og yngri þegar hann lagði Ástmund Kolbeinsson (Víking) 6-0, 6-1 í úrslitaleik. Rafn Kumar keppti einnig í flokknum yngri en 18 ára þar sem hann tryggði sér þriðja sæti eftir sigur á Luis Rabelo (BH) 6-1, 6-1, og í meistaraflokki þar sem hann komst í átta manna úrslit.

Rafn Kumar er nú á leið til Aþenu þar sem hann mun keppa fyrir hönd Reykjavíkur á Borgarleikunum en síðar í sumar verður hann einn af fulltrúum Íslands á Ólympíuleikum æskunnar sem fram fara í Finnlandi.