lesa frétt

Rafn Kumar sigursæll á Stórmóti Tennissambands Íslands

2.3.2010
Rafn Kumar, 15 ára, vann til bronsverðlauna í meistaraflokki karla í einliðaleik. Hann lagði fjórða besta tennisleikara landsins, Magnús Gunnarsson (TFK), að velli, 9-6, í átta manna úrslitum en tapaði í undanúrslitum á móti  Andra Jónssyni (TFK), 6-2,6-2..   

Í tvíliðaleik hafnaði Rafn Kumar í öðru sæti í meistaraflokki ásamt Kjartani Pálssyni (TFK).  

Þetta var annað mótið í röð sem Rafn Kumar vinnur til bronsverðlauna í meistaraflokki en markmið hans er að tryggja sér sæti í karlalandsliði Íslands sem keppa mun á HM mótinu (Davis Cup) í Aþenu í Grikklandi nú í maí.