Knattspyrnufélagið Víkingur var stofnað
21. apríl árið 1908 í
kjallaranum að Túngötu 12 í Reykjavík, þar sem Emil Thoroddsen átti
heima. Á stofnfundinn mættu 32 drengir. Aðalhvatamenn og í fyrstu stjórn
voru fyrirliði hópsins og fyrsti Víkingurinn, Axel Andrésson þá 12 ára
gamall, formaður, Emil Thoroddsen 9 ára, ritari og Davíð Jóhannesson, 11
ára, gjaldkeri. Aðrir stofnendurnir voru Páll 8 ára bróðir Axels, og
Þórður Albertsson, 9 ára. Við erum því 102 ára í dag. Til hamingju með daginn Víkingar.