Fjölbreytt þjálfun í boði hjá almenningsíþróttadeild Víkings
Í haust mun almenningsíþróttadeild Víkings fara af stað með fjölbreytta þjálfun. Boðið verður upp á styrktarþjálfun í tækjasal, stafgöngu, skokkhóp og útivistarhóp. Í sumar hafa um 30 hlauparar farið í hlaupapróf og æft eftir hlaupaáætlun þjálfara. Haldið verður áfram með skokkhóp Víkings mánudaginn 16. ágúst og er öllum frjálst að vera með. Áhugasamir eru hvattir til að mæta klukkan 18:00 fyrir utan Víkina mánudaga og miðvikudaga. Dagana 23. ágúst, 25. ágúst og 30. ágúst verður kynning á starfssemi skokkhópsins og boðið upp á hlaupapróf fyrir þá sem hafa vilja.
Í lok ágúst og byrjun september verður farið af stað með hina hópa almenningsíþróttadeildarinnar. Á þriðjudögum verður boðið upp á styrktarþjálfun í tækjasal undir leiðsögn íþróttafræðings auk þess mun salurinn verða opinn almenningi á ákveðnum tímum.
Útivistarhópurinn mun hittast á fimmtudögum í vetur í fjölbreyttri útiveru. Farið verður í gönguferðir um Elliðaárdalinn, hjólaferðir, ratleikjahlaup og fleira. Fyrsta laugardag í hverjum mánuði verður gengið á fjall í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Síðast en ekki síst verður stafgönguhópur starfræktur frá Víkinni. Þar verður farið yfir grunnatriði í stafgöngu sem og fjölbreyttar líkams- og styrktaræfingar.
Þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 20:00 var haldin kynningarfundur í Víkinni þar sem starfsemi almenningsíþróttadeildarinnar var kynnt.
Þá kynningu má finna á slóðinni hér að neðan.
Amlenningsíþróttadeild kynning á starfsemi sem verður í boði í vetur.
Hlaupaáætlanir
Byrjendur
Markmið 5-10 km
Markmið 10-15 km
Þjálfari almenningsíþróttadeildarinnar og nánar upplýsingar veitir Bjarney Gunnarsdóttir íþróttafræðingur í síma 869-3984 eða með tölvupósti á bjarney@vikingur.is