Fréttir
27.7.2010

Góður árangur hjá 4.flokki kvenna á Gothia Cup.

Fjórði flokkur kvenna náði góðum árangri á Gothia Cup í Gautaborg dagana

17-24 júli. Í riðlakeppninni þar sem keppt var í 23 riðlum og 92 lid tóku þátt var flokkurinn með næst besta árangur í þessum 23 riðlum.

Lesa frétt »
26.7.2010

Aron Þrándarson valinn í U17 ára landsliðið.

Aron Þrándarson hefur verið valinn í U17 ára landslið Íslands í piltaflokki sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Finnlandi dagana 1.-9. ágúst.


Lesa frétt »
23.7.2010

Víkingar á toppnum

Það var boðið upp á sannkallaða veislu í Víkinni í gærkvöldi þegar Fjölnismenn komu í heimsókn. Eftir bráðfjörugan fyrri hálfleik leiddu gestirnir 1:2. Það var Dofri Snorrason (mynd) sem kom Víkingum í 1:0 en Fjölnismenn svöruðu í tvígang fyrir leikhlé. Lesa frétt »
23.7.2010

Sigurður: Þær stóðu sig afbragðsvel

Keflavík sigraði HK/Víking, 2:1, í hörkuleik í 1. deild kvenna á Sparisjóðsvellinum í Keflavík í kvöld. Þetta var lykilleikur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni og nú er ljóst að það verða Keflavík og Þróttur sem komast áfram úr riðlinum en HK/Víkingur getur þó vel við unað í góðri stöðu í þriðja sætinu. Það var Ingibjörg Sigvaldadóttir sem skoraði mark liðsins í kvöld.

Lesa frétt »
21.7.2010

Flottir krakkar á Gothia Cup

Nú eru um 50 strákar og stelpur úr 4.flokki karla og kvenna í knattspyrnu við keppni á Gothia Cup sem fram fer í Gautaborg. Árangur hefur verið mjög góður hingað til og er riðlakeppninni að ljúka. Bæði 4.flokkur kvenna og 4.flokkur karla eru komin áfram i A-úrslit med þvi ad sigra sína riðla. Lesa frétt »
20.7.2010

Frá formanni knattspyrnudeildar

Kæru Víkingar,

Við erum hálfnuð á leið okkar að okkar skýra takmarki árið 2010 sem er að leika í úrvalsdeildinni á næsta ári - árið 2011. Verkefninu miðar vel en það er mikið eftir – 10 mikilvægir og erfiðir leikir þar sem við verðum að nálgast hvern og einn leik sem algeran úrslitaleik. 

Lesa frétt »
19.7.2010

Minning

Sigurður Sveinn Jónsson fyrrum formaður handknattleiksdeildar og fyrrum formaður HSÍ verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag mánudaginn 19. júlí kl. 13:00. Sigurður fæddist 4.1. 1933 í Reykjavík. Hann andaðist 12.7. 2010.

Lesa frétt »
19.7.2010

HK/Víkingur tapaði á Akureyri

HK/Víkingur mátti sætta sig við ósigur í seinni leik sínum í Norðurlandsferðinni þegar liðið mætti Draupni í 1. deild kvenna í Boganum á Akureyri í gær.  Lesa frétt »
17.7.2010

HK/Víkingur sigraði á Húsavík

Stúlkurnar í meistaraflokki HK/Víkings gerðu það gott norður á Húsavík í dag þegar þær sigruðu Völsung, 3:1, í 1. deild kvenna. Guðrún Hermannsdóttir skoraði tvö markanna og Tinna Óðinsdóttir eitt. Staðan var 2:0 í hálfleik.

Lesa frétt »
16.7.2010

Hugrún valinn í U17 ára landslið Íslands

Hugrún Friðriksdóttir hefur verið valin í  U17 ára landsliðs Íslands sem leikur tvo vináttuleiki í Færeyjum 24. og 25. júlí. Hugrún er vel að valinu komin og óskum við henni til hamingjum með árangurinn og góðs gengis gegn frændum okkar í Færeyjum. Lesa frétt »
16.7.2010

Knattspyrnu- og lífstílsnámskeið

Í sumar er í boði knattspyrnu- og lífstílsnámskeið fyrir börn og unglinga með sérþarfir hér í Víkinni. Pétur Örn Svansson og Egill Atlason, leikmenn meistaraflokks Víkings sjá um námskeiðið og er það haldið í samvinnu við Reykjavíkurborg.

Lesa frétt »
16.7.2010

Gott gengi hjá 3. flokki karla.

Víkingsliðin létu við kvurn sinn fingur á Árbæjarvelli og sigruðu Fylki í báðum leikjum kvöldsins. Víkingum hefur gengið upp og niður á þessum slóðum en í þetta sinn var Víkingssigur í A-leiknum verðskuldaður og sannfærandi en tæpt stóð að halda fengnum hlut til loka B-leiksins en tókst. Þrjú stig þar með í hús hjá báðum liðum og munar um minna. A-liðið er í bullandi toppbaráttu í sínum riðli og B-liðið hefur komið sér ögn betur fyrir í sínum riðli en ella, með tvo sigurleiki í röð. Nánar á bloggsíðu flokksins.
Lesa frétt »
15.7.2010

Minning

Vilhelm Ingvar Andersen fyrrum formaður knattspyrnudeildar, stjórnarmaður í aðalstjórn og leikmaður Víkings verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag fimmtudaginn 15. júlí kl. 15:00.


 

Lesa frétt »
13.7.2010

5. flokkur gerði góða ferð á Ísafjörð

5. flokkur karla lagði land undir fót á mánudaginn var og skelltu sér til Ísafjarðar þar sem þeir spiluðu við heimamenn og sveitunga þeirra frá Bolungarvík. Þessi miklu kappar sigruðu í öllum 4 liðum og komu því sáttir aftur í höfuðstaðinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd!

Lesa frétt »
12.7.2010

Þrenna Guðrúnar og HK/Víkingur vann Álftanes

HK/Víkingur vann Álftanes, 5:3, í tvísýnum leik í 1. deild kvenna sem fram fór á Kópavogsvellinum í kvöld. Guðrún Hermannsdóttir skoraði þrennu fyrir HK/Víking en fyrstu tvö mörkin gerðu þær Tinna Óðinsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.

Lesa frétt »
12.7.2010

Á toppinn eftir sigri á KA

Víkingar eru komnir á toppinn í 1. deildinni eftir sigur á KA, 2 - 0 í tíundu umferð. Helgi Sigurðsson skoraði bæði mörkin í seinni hálfleik. Næsti leikur Víkings er gegn HK á Kópavogsvelli miðvikudaginn 14. júlí kl. 20:00.
9.7.2010

1. Deild karla: Víkingur - KA sunnudaginn kl. 14:00 í Víkinni.

  Víkingur fær KA í heimsókn sunnudaginn 11. júlí kl. 14:00. Víkingur er í öðru sæti deildarinnar með 19. stig en KA er í tíunda sæti með 9. stig. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur Víkinga og þörfin á stuðningi hefur sjaldan verið meiri. Það eru skýr markmið að liðið ætlar að berjast fyrir sæti í efstu deild að ári. Það gerist ekki nema Víkingar standi saman og styðji liðið alla leið. ÁFRAM VÍKINGUR.


Lesa frétt »
8.7.2010

Handboltaskóli Víkings 16. - 20. ágúst

Handboltaskóli VÍKINGS er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára.

Hópnum verður skipt upp eftir aldri, 6-9 ára og 10-12 ára. Með því munum við koma til móts við þarfir og getu hvors hóps. Farið verður í grunnatriði handboltans og einnig byggt ofan á þá reynslu sem börnin hafa öðlast.

Tilvalið fyrir krakka sem vilja byrja að æfa og fá því kraftmikla og góða byrjun. Einnig gott fyrir þá sem hafa æft áður og vilja bæta sig en meira fyrir komandi vetur.

Lesa frétt »
7.7.2010

Guðmundur Stephensen mun halda æfingabúðir í TBR húsinu í borðtennis

Guðmundur Stephensen mun halda æfingabúðir í TBR húsinu.

Samtals 4 æfingar, dagana 13.-16.júlí.

Lesa frétt »
5.7.2010

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Knattspyrnufélagið Víkingur boðar til aðalfundar þriðjudaginn 13. júlí kl. 20:00.


Lesa frétt »
2.7.2010

Viktor með tvö í 4-0 sigri gegn ÍR.

Meistaraflokkur karla vann góðan 4-0 sigur á ÍRingum í gær. Mörk Víkings í leiknum skorðuðu Viktor Guðmundsson 2, Marteinn Briem 1 og Helgi Sigurðsson 1. Nánari umfjöllun má finna á vikingur.net
1.7.2010

1. deild karla: ÍR - Víkingur kl. 20:00

   Meistaraflokkur karla mætir ÍR í Breiðholtinu í kvöld kl. 20:00.
Staðan í deildinni fyrir leikinn í kvöld er þannig að ÍR er með 17 stig i öðru sæti en Víkingur í þriðja með 16 stig. Við skorum á alla Víkinga til að mæta og hvetja okkar lið til sigurs. Áfram Víkingur!
1.7.2010

Almenningsíþróttadeildin fer vel af stað.

Núna hafa hátt í 30 Víkings-hlauparar mætt í hlaupapróf hjá Bjarneyju, þjálfara almenningsíþróttadeildarinnar. Prófin hafa gengið vel og hafa bæði gamalreyndir hlauparar og byrjendur spreytt sig.

Lesa frétt »
25.6.2010

2. fl.kvenna: Markverðir í aðalhlutverkum

HK/Víkingur tók á móti Haukum á Íslandsmóti 2. flokks kvenna í sól og blíðu í Víkinni í kvöld. Haukar höfðu betur, 3:1, í leik sem bauð uppá fjölda góðra marktækifæra en markverðirnir sáu til þess að mörkin urðu ekki helmingi fleiri en fjögur.

Lesa frétt »
24.6.2010

1. deild karla: Víkingur - Grótta laugardag kl. 16:00

Eftir tap gegn Val 1:3 í framlengdum bikarleik í gærkvöldi undirbýr meistaraflokkur sig fyrir næsta leik í 1. deildinni. Að þessu sinni eru það nýliðar Gróttu sem koma í Víkina. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur Víkinga og þörfin á stuðningi hefur sjaldan verið meiri. Það eru skýr markmið að liðið ætlar að berjast fyrir sæti í efstu deild að ári. Það gerist ekki nema Víkingar standi saman og styðji liðið alla leið. Lesa frétt »
22.6.2010

Víkingur-Valur miðvikudag kl. 20:00 í Víkinni

merki Valur


Það er sannkallaður stórleikur sem fer fram í Víkinni á miðvikudagskvöld kl. 20:00. Víkingar taka þá á móti Valsmönnum í 16 liða úrslitum Visa bikarsins. Valsmenn hafa farið vel af stað í Pepsideildinni og sitja nú í 1.-3. sæti deildarinnar ásamt Fram og Keflavík. Lesa frétt »
22.6.2010

Magnús Theodórsson sigraði í vormóti Víkings í golfi.

Magnús Theodórsson sigraði í vormóti Víkings í golfi,sem fór fram í frábæru veðri á velli GKG. Spilaðar voru 18 holur í Leirdal.


Lesa frétt »
21.6.2010

Almenningsíþróttadeild Víkings tekur til starfa.

Almenningsíþróttadeild Víkings býður upp á fjölbreytta þjálfun undir leiðsögn íþróttafræðings.

Kynningatímar og hlaupamælingar verða haldnar dagana 23. 28. og 30. júní auk 5. júlí  kl. 18:00. Þá verður afhent hlaupaprógramm til að fylgja yfir sumarið.

Lesa frétt »
20.6.2010

2. fl. kvenna. Stórsigur á Þrótti í bikarnum.

2. fl. kvenna lét ekki sitt eftir liggja og fylgdi góðu fordæmi 2. fl. HK karla sem sigraði Stjörnuna stórt fyrr á föstudagskvöldi. Þróttur varð fyrir leikmönnum HK/Víkings sem sigraði einnig með 5 mörkum gegn engun þetta sama kvöld. Lesa frétt »
16.6.2010

Mjög stoltur af mínu liði

HK/Víkingur veitti í kvöld firnasterku liði Þróttar harða keppni í 1. deild kvenna þegar liðin mættust í Víkinni. Þróttarkonur mörðu nauman sigur, 1:0, í leik þar sem úrslitin gátu fallið á hvorn veginn sem var.

Lesa frétt »
13.6.2010

Tvö í lokin og HK/Víkingur vann Völsung

HK/Víkingur lagði í dag Völsung að velli, 2:1, í 1. deild kvenna í Víkinni. Húsvíkingar komust yfir snemma leiks og lengi vel stefndi allt í sigur þeirra en á lokamínútunum skoruðu Valgerður Tryggvadóttir og Sólveig Þórarinsdóttir og tryggðu HK/Víkingi sætan sigur. Lesa frétt »
10.6.2010

Það er sannkallaður stórleikur í Víkinni annað kvöld.

  


Að þessu sinni eru það Skagamenn sem koma í heimsókn en leikir þessara liða eru ávallt mikil skemmtun.

Staða okkar Víkinga í deildinni er nokkuð vænleg og sigur í þessum leik kæmi okkur í verulega spennandi stöðu.

Skagamenn hafa hins vegar mætt töluverðum mótbyr í upphafi móts og þurfa á sigri að halda. Von er á töluverðum fjölda áhorfenda til að styðja við bakið á þeim.

 


Lesa frétt »
8.6.2010

Vormót Víkings í golfi verður haldið 18. júní

Fer fram á velli GKG þann 18. júni.

Leiknar verða 18 holur í Leirdal.

Mótsgjald kr. 5.000 sem greiðist við mætingu.

Fyrirkomulag: Punktakeppni með forgjöf.

Vegleg verðlaun fyrir 1.-3. sæti. Verðlaun fyrir lengsta teighögg á 1. braut

Verðlaun fyrir næst holu á 2. og 13. braut - gjafabréf frá Úrval Útsýn.


Lesa frétt »
7.6.2010

Tennisskóli fyrir börn í sumar

Tennisdeild Víkings verður með tennisnámskeið fyrir krakka 5-13 ára.  Námskeiðin fara fram á tennisvöllum Víkings á eftirfarandi tímabili -
Námskeið 1 / 14.-25. júní
Námskeið 2 / 28. júní-9. júlí
Námskeið 3 / 12.-23. júlí
Námskeið 4 / 26. júlí- 7. ágúst
Námskeið 5 / 9.-20.ágúst

Skráning á www.tennis.is
6.6.2010

Tvö rauð spjöld og HK/Víkingur úr leik í bikarnum

Stúlkurnar í meistaraflokki HK/Víkings lögðu land undir fót í dag og léku á Sauðárkróki við lið Tindastóls/Neista í 2. umferð VISA-bikarsins. Norðanstúlkur reyndust sterkari og sigruðu, 3:0, og fara í 16-liða úrslitin en HK/Víkingur getur einbeitt sér að 1. deildinni...

Lesa frétt »
5.6.2010

Skíðaþjálfarar óskast

Skíðafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið starfa saman að þjálfun keppenda 15 ára og eldri.  Markmið samstarfsins er að styrkja tengsl meðal iðkenda svæðisins, skapa metnaðarfulla umgjörð  afreksmanna um leið og kostir og styrkleiki samstarfs eru nýttir.

Lesa frétt »
5.6.2010

Sigur á Njarðvíkingum

Í dag léku Víkingar gegn Njarðvíkingum í dýrindisveðri í Víkinni. Það er skemmst frá því að segja að Víkingar sigruðu 1:0 og hafa 10 stig að loknum 5 umferðum. Lesa frétt »
4.6.2010

Frábær árangur á VÍS-móti Þróttar um síðustu helgi.

6. og 7. Flokkur kvenna og karla tóku þátt í VÍS-móti Þróttar um síðustu helgi.  Víkingur vann í fyrstu verðlaun í fimm liðum 7. kvenna A- lið, 7.  kvenna C- lið, 6. kvenna C- lið og svo vann 6. flokkur karla vann bæði í C og D liðum. Síðan lenti 7. flokkur karla A lið í öðru sæti eftir hlutkesti.


Lesa frétt »
3.6.2010

Keflavík hafði betur í toppslagnum

HK/Víkingur tók í gærkvöldi á móti Keflavík í viðureign liðanna í tveimur efstu sætum A-riðils 1. deildar kvenna, á Kópavogsvelli. Keflavík var sterkari aðilinn og sigraði örugglega, 5:0, sem var þó kannski helst til stór sigur miðað við gang leiksins.  Lesa frétt »
3.6.2010

Víkingur-Njarðvík á laugardag kl. 14:00 í Víkinni

merki NjarðvíkÁ laugardaginn hefst 5. umferð 1. deildar og að þessu sinni taka Víkingar á móti Njarðvík í Víkinni kl. 14:00. Leikurinn er báðum liðum geysilega mikilvægur. Víkingar sitja í 4. sæti deildarinnar með 7 stig og geta með sigri blandað sér af miklum þunga í toppbaráttu deildarinnar. Lesa frétt »
3.6.2010

Öruggur sigur á Sindra 7:0

Víkingar léku gegn Sindra í 32 liða úrslitum VISA bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi. Leikurinn var hin ágætasta skemmtun enda litu fjölmörg Víkingsmörk dagsins ljós. Lesa frétt »
2.6.2010

Þriðji sigurinn í röð hjá 2. flokki karla.

Annar flokkur Víkings hélt áfram sigurgöngu sinni á Íslandsmótinu með sínum þriðja sigri í jafnmörgum leikjum. Strákarnir léku sinn fyrsta heimaleik á móti sameinaðu liði Grindavíkur/Njarvíkur og uppskáru 2-0 sigur.
Lesa frétt »
2.6.2010

VISA bikarkeppni KSÍ í kvöld í Víkinni

Víkingar taka á móti Sindra frá Höfn í Hornafirði í 32 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í kvöld kl. 19:15. Sindramenn, sem leika í 3. deildinni, hafa farið vel af stað og eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Það er Grindvíkingurinn knái Óli Stefán Flóventsson sem þjálfar liðið í dag. Lesa frétt »
29.5.2010

Grátlegt tap á Akureyri

Víkingar sóttu Þór Akureyri heim í kvöld og máttu þola grátlegt tap 4:3. Allt lék í lyndi í upphafi leiks og mörk frá Walter Hjaltested og Agli Atlasyni komu okkar mönnum í 0:2 eftir rúmlega 8 mínútna leik. Eflaust héldu margir vallargestir að þar með væri leikurinn svo gott sem búinn en leikmenn Þórs voru á öðru máli og spýttu heldur betur í lófana. Lesa frétt »
28.5.2010

Þór A.-Víkingur á Þórsvelli kl. 19 í kvöld

merki ÞórKeppni í 1.deild karla heldur áfram í kvöld og nú halda Víkingar norður til Akureyrar og mæta sterku liði Þórs. Að loknum 3 umferðum er liðið okkar í 2. sæti deildarinnar með 7 stig og sigur í kvöld gefur von um toppsætið. Lesa frétt »
27.5.2010

HK/Víkingur vann og Tinna skoraði í 100. leiknum

HK/Víkingur sigraði Álftanes, 2:0, í 1. deild kvenna á Bessastaðavelli í kvöld og liðið er þar með komið með sex stig eftir fyrstu tvo leikina, án þess að fá á sig mark. Hjördís Hugrún Sigurjónsdóttir og Tinna Óðinsdóttir skoruðu mörkin. 


Lesa frétt »
27.5.2010

Hengill - skíðaskáli Skíðadeildar Víkings til útleigu

Skíðaskálinn Hengill er til útleigu allt árið um kring fyrir félagssamtök, vinnuhópa,  skóla og alla aðra sem áhuga hafa. Skálinn sem er nýr og stórglæsilegur er í  eigu skíðadeilda ÍR og Víkings. Hann rúmar í allt 90 manns í gistingu og þar er mjög  góð eldunaraðstaða og tveir góðir matsalir sem hægt er að opna á milli. Upplýsingar um útleigu í símum 5877080 ÍR og 5813245 Víkingur eða  skalanefnd@gmail.com  

Lesa frétt »
27.5.2010

4.flokkur kvenna byrjar Íslandsmótið á stórsigri

Nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar 4.flokks kvenna hófu leik í A-riðli Íslandsmótsins í gær. Andstæðingar komu úr Grindavík og áttu stelpurnar mjög góðan leik.
Lesa frétt »
26.5.2010

Víkingar með 6 Reykjavíkur/Faxaflóameistara í 13 greinum á skíðum.

Víkingar stóðu sig vel á Reykjavíkur/ Faxaflóa meistara mótinu í vetur.
Þar unnu 6 einstaklingar 13 greinar.  Aðrir stóðu sig vel og voru margir sem komust á pall.
Lesa frétt »
26.5.2010

Jón Gauti Ástvaldsson bikarmeistar SKI í flokki 17-19 ára

Víkingurinn Jón Gauti Ástvaldsson varð bikarmeistai SKI í flokki 17-19 ára eftir mót vetrarins.
Lesa frétt »
26.5.2010

Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar Víkings

Fimmtudaginn 27. maí 2010 kl 17:00 -19.00  mun uppskeruhátíðin fara fram.
Veittar verða viðurkenningar í 3. - 4. - 5. flokkum en einnig fá allir iðkendur
viðurkenningarskjal fyrir veturinn. Boðið verður upp á grillaðar pylsur.
Þetta er ein af gömlum hefðunum hér í Víking og vonumst við til að sem flestir
mæti og eigi með okkur skemmtilega stund.
Stjórn Barna- og unglingaráðs handknattleiksdeildar Víkings.

Lesa frétt »
26.5.2010

2 . flokkur karla vann Þrótt 1 - 0.

Annar flokkur Víkings vann sinn annan leik í röð á útivelli og hefur liðið því unnið tvo fyrstu leiki liðsins í Íslandsmótinu,
Lesa frétt »
23.5.2010

HK/Víkingur byrjaði á 4:0 sigri

Meistaraflokkslið HK/Víkings fór vel af stað á Íslandsmótinu í ár því liðið vann í dag 4:0 sigur á Draupni frá Akureyri í 1. deild kvenna, en leikur liðanna fór fram í Kórnum.

Lesa frétt »
21.5.2010

Annar flokkur kvenna: Tíu mörk á Álftanesi

Stúlkurnar í 2. flokki byrjuðu Íslandsmótið með miklum krafti í gærkvöld. Þær sóttu lið Álftaness heim á Bessastaðavöll og unnu þar yfirburðarsigur, 10-2.
Lesa frétt »
21.5.2010

Annar flokkur karla hóf keppnistímabilið á góðum 3 - 1 sigri á ÍR.

Annar flokkur Víkings hóf keppnistímabilið á góðum sigri 3- á IR á ÍR-velli í gær. Víkingar byrjuðu leikinn á miklum krafti og sköpuðum sér góð marktækifæri í upphafi leiks. Það var svo Tómas sem spilaði í sigurleik meistaraflokksins kvöldið áður í Borgarnesi sem skoðað fyrsta mark liðsins með viðstöðulausu skoti eftir hornspyrnu Garðars. Lesa frétt »
20.5.2010

Hópurinn stækkar í meistaraflokki kvenna

Meistaraflokkur kvenna spilar fyrsta leik sinn á íslandsmótinu á laugardaginn og hefur síðustu daga og vikur fengið mikinn liðsauka fyrir baráttuna í sumar.

Sex leikmenn hafa bæst í hópinn, þar af hafa tvær af leikjahæstu leikmönnum HK/Víkings frá upphafi tekið fram skóna á ný eftir nokkurt hlé. Fjórar hafa komið frá öðrum félögum og sú fimmta er væntanleg.

Lesa frétt »
20.5.2010

Aðalvinningur í happadrætti 4.flokks sóttur

Í dag gaf handhafi miðans sem hreppti 1. vinning í happadrætti 4. flokks karla í knattspyrnu sig fram við starfsmenn í Víkinni. Það var einn pabbinn í flokknum sem var sá heppni og hlaut að launum gjafabréf frá Ferðaskrifstofunni VITA að upphæð kr. 120.000,-
Lesa frétt »
19.5.2010

Skallagrímur-Víkingur í VISA bikarnum í kvöld kl. 19:00


Víkingar hefja leik í VISA bikarkeppni KSÍ í kvöld þegar liðið sækir Skallagrím heim í Borgarnesi. Sigurvegarar leiksins fara í pottinn þegar dregið verður í 32 liða úrslit keppninnar. Lið Skallagríms leikur í 3. deildinni og hefur í gegnum tíðina notið góðs af nálægð sinni við Skagann þegar kemur að leikmannamálum. Síðustu vikur hafa 6 leikmenn skipt frá ÍA yfir í Skallagrím en töluverðar breytingar hafa átt sér stað hjá þeim eftir dapurt tímabil í fyrra. Liðið sigraði aðeins 5 leiki af 15 í C-riðli 3. deildar og hlaut 17 stig af 45 stigum mögulegum. Leikurinn hefst kl. 19 og kostar 500 krónur inn fyrir fullorðna en frítt fyrir 16 ára og yngri skv. heimasíðu Skallagríms.
17.5.2010

4.flokkur kvenna bætir enn einum bikar í safnið

Fjórði flokkur kvenna vann fjórða mótið á tímabilinu þegar liðið vann mjög sterkt mót hjá KR sem ber heitið Baráttumót KR.


Lesa frétt »
17.5.2010

4.flokkur kvenna tvöfaldir Reykjajvíkurmeistarar-Afhending verðlauna.

4.flokkur kvenna tvöfaldir Reykjajvíkurmeistarar-afhending verðlauna
Í hálfleik á leik Víkings og Fjarðarbyggðar var 4.flokki kvenna í A og B liðum afhent verðlaun fyrir sigra í Reykjarvíkrmótinu sem er nýlokið.

Lesa frétt »
16.5.2010

3. fl. kvenna. Eimskipsmótinu lokið.

Síðari keppnisdagurinn á Eimskipsmóti HK/Víkings í 3. fl. kvenna var jafn bjartur og sá fyrri og leikgleðin í fyrirrúmi og keppnisskapið með í för eins og lög gera ráð fyrir. Lesa frétt »
15.5.2010

3. fl. kvenna. Eimskipsmótið hálfnað í góðu veðri.

Það er ekki amalegt að stunda knattspyrnu í þeirri blíðunni sem boðið var upp á í Fossvogsdalnum þennan laugardaginn. HK/Víkingur stendur þessa helgina fyrir móti í 3. fl. kvenna og voru leiknar 10 leikir í tveimur riðlum í dag. Lesa frétt »
15.5.2010

Fjölnir - Víkingur 2:2

Víkingur mættu Fjölni í Grafarvoginum í 2.umferð Íslandsmótsins í gærkvöldi. Leikurinn endaði með stórmeistarajafntefli 2:2. Víkingur komst yfir á 22. mínútu með marki Dofra Snorrasonar en Fjölnismenn jöfnuðu leikinn á 82. mínútu. Okkar menn gáfust ekki upp og komust yfir á nýjan leik á 85. mínútu þegar Þorvaldur Sveinn Sveinsson var fyrstur að átta sig í vítateig andstæðinga og skoraði. Leiknum var þó ekki lokið og aftur jöfnuðu Fjölnismenn þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. Lokastaðan 2:2 og geta Víkingar vel við unað að fá stig út úr leiknum gegn baráttuglöðu Fjölnisliði. Nánar má lesa um leikinn á vef stuðningsmanna vikingur.net
Að lokinni 2. umferð er Víkingsliðið í 3. sæti deildarinnar með 4 stig. Stöðuna og næstu leiki má sjá á vef KSÍ.

Næsti leikur liðsins er í VISA bikarnum miðvikudaginn 19. maí gegn Skallagrími í Borgarnesi og hefst leikurinn kl. 19:00. Skallagrímsmenn sigruðu lið Afríku örugglega 9:0 í 1. umferð bikarsins og eru sýnd veiði en ekki gefin.
15.5.2010

Davíð Ellertsson lánaður til ÍH

Vinstri fótar bakvörðurinn knái Davíð Ellertsson hefur verið lánaður til 2. deildar liðs ÍH í Hafnarfirði. Davíð, sem gekk til liðs við Víking fyrir síðasta tímabil, óskaði eftir því að vera lánaður til að öðlast meiri leikæfingu og var ákveðið að verða við því. Það er þó alls ekki útilokað að Davíð verði kallaður til baka þegar líður á sumarið. Við óskum honum góðs gengis í þessu verkefni.
14.5.2010

Félagaskiptaglugginn að loka - breytingar í Víkinni

Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti annað kvöld og hafa Víkingar fengið til liðs við sig Viktor Örn Guðmundsson frá Íslandsmeisturum FH. Viktor, sem kemur að láni, lék alla leiki FH í deildabikarnum í vor auk þess að skora sigurmark þeirra í leik gegn Breiðablik í Meistarakeppni KSÍ. Hann leikur ýmist sem vinstri bakvörður eða vinstri kantmaður og eykur því á samkeppni í liðinu.

Elvar Freyr Arnþórsson hefur verið lánaður til Gróttu og mun leika með þeim í sumar. Elvar framlengdi um leið samning sinn við Víking til haustsins 2011.

12.5.2010

Dofri valinn maður 1. umferðar

Fréttasíðan fotbolti.net hefur valið Dofra Snorrason leikmann 1. umferðar í 1. deildinni. Dofri, sem gekk í raðir okkar Víkinga skömmu fyrir mótið, skoraði bæði mörk liðsins í 2:1 sigri á Fjarðabyggð. Sannarlega glæsileg frammistaða.
11.5.2010

Eimskipsmót 3. flokks kvenna í knattspyrnu fer fram um næstu helgi.

Um næstu helgi er ráðgert að halda hraðmót í 3. fl. kvenna. Um nýlundu er að ræða en mótið er haldið í samstarfi milli HK og Víkings á vegum 2. fl. og mfl. HK/Víkings með góðum liðstyrk 3. flokka hvors félags um sig sem munu verða í baráttunni í mótinu.

Lesa frétt »
11.5.2010

Vinningsnúmer í happadrætti 4. flokks karla í fótbolta.

Dregið var þann 10. maí í happadrætti 4. flokks karla í fótbolta. Vinninga má nálgast á skrifstofu Víkings hjá Haraldi framkvæmdastjóra eða Ólafi Íþróttastjóra á skrifstofu tíma.
Lesa frétt »
11.5.2010

Sigur í fyrsta leik

Víkingar sigruðu Fjarðabyggð 2:1 í fyrsta leik Íslandsmótsins í Víkinni í gærkvöldi. Það var Dofri Snorrason sem skoraði mörk Víkinga á 18. og 20. mín og kom þeim í 2:0.  Lesa frétt »
10.5.2010

Víkingur-Fjarðabyggð í kvöld kl. 19 - staðfest

Nú liggur ljóst fyrir að leikur Víkings og Fjarðabyggðar verður leikinn í kvöld kl. 19:00. Liðsmenn Fjarðabyggðar stíga um borð í vél Flugfélags Íslands á Egilsstöðum kl. 11:30 og lenda í Reykjavík um klukkustund síðar.
Það er okkur Víkingum gríðarlega mikilvægt að fjölmenni verði á leiknum í kvöld. Mikil vinna hefur verið lögð í starfið í undanfara mótsins og heimavöllur okkar í Víkinni er sá glæsilegasti á landinu en þar hefur fjöldi sjálfboðaliða lagt hönd á plóginn.
Árskort verða seld við innganginn og er verðið kr. 10.000,- og kr. 18.000,- fyrir hjónakort. Meðlimir í Víkingasveitinni geta nálgast árskort sitt í Víkinni í dag eða við innganginn í kvöld.

Áfram Víkingur!
9.5.2010

Víkingur-Fjarðabyggð frestað til mánudags kl. 19:00

Leik Víkings og Fjarðabyggðar hefur verið frestað til mánudagsins 10. maí kl. 19:00 þar sem austanmenn komast ekki með flugi í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
8.5.2010

A-lið 4. flokks karla Reykjavíkurmeistari

Strákarnir í A-liði 4. flokks tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitill með stórsigri á Val í Víkinni í gær, fimm mörkum gegn einu í næstsíðustu umferð mótsins. Þeir mættu svo Fylki í lokaumferðinni í dag, laugardag, og sigruðu örugglega með þremur mörkum gegn einu. Lesa frétt »
7.5.2010

4. flokkur kvenna tvöfaldir Reykjavíkurmeistarar

4. flokkur kvenna er  Reikjarvíkurmeistarar 2010 í A og B liðum.   Þessi árangur bætist við  Íslandsmeistara titil  innanhúss hjá þessum stelpum og þær unnu fyrr í vetur.  Það hefur verið góður stígandi í spilamennsku stelpnanna  nú á vormánuðum og eru þær hér að uppskera frá góðri  æfingasókn í vetur. 
Lesa frétt »
6.5.2010

Sala árskorta fyrir tímabilið 2010 er hafin.

ÁRSKORT 2010 - SALA HAFIN

Sala árskorta fyrir tímabilið 2010 er hafin. Sala árskorta er afar mikilvæg fyrir starf og rekstur knattspyrnudeildar.


Lesa frétt »
4.5.2010

Sumarskóli Víkings skráning hafin!



Skráning í knattspyrnuskóla Víkings er hafin.
Knattspyrnuskóli Víkings er fyrir krakka á aldrinum 5-13. Námskeiðin eru ýmist kl. 9-12 eða kl. 9-16.

Boðið er upp á gæslu frá kl. 8-9 og frá 16-17  og er það innifalið í gjaldinu.


Lesa frétt »
4.5.2010

Knattspyrnudeild fagnar vori í vertíðarbyrjun

Fótboltaball meistaraflokks í ár byrjar á Víkingsvelli á sunnudaginn kemur, 9. maí, þegar lið Fjarðabyggðar kemur í heimsókn. Knattspyrnudeild gefur vinum og velunnurum sínum tækifæri til að taka úr sér hrollinn og hita upp á vorfagnaði á föstudagskvöldð 7. maí  þar sem mætir menn fara yfir stöðu mála og leynigestur mætir á svæðið!
Lesa frétt »
3.5.2010

Þakklátir gestir, ánægðir aðstandendur KFC-móts Víkings

Ætla má að um í það minnsta 2.000 manns hafi komið í Víkina um nýliðna helgi vegna KFC-móts Víkings:  iðkendur, foreldrar og þjálfarar af höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og frá Selfossi.. Mótið var hið stærsta frá upphafi og tókst með ágætum. Lesa frétt »
1.5.2010

Yfir 1.000 iðkendur á KFC-mót Víkings 2010!

KFC-mót Víkings, fyrir stráka og stelpur í 7. flokki, er umfangsmeira og fjölmennara í ár en nokkru sinni  fyrr. Liðlega 1.000 iðkendur eru skráðir til leiks, þar af yfir 600 strákar á sjálfum baráttudegi verkalýðsins og um 400 stelpur á morgun, sunnudaginn 2. maí. Lesa frétt »
30.4.2010

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur ráðið Harald V. Haraldsson

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur ráðið Harald V. Haraldsson, viðskiptafræðing, sem framkvæmdastjóra félagsins frá og með 1. maí. Haraldur leysir Eirík Benónýsson af hólmi, en hann hverfur til nýrra starfa.

Lesa frétt »
28.4.2010

Víkingur Íslandsmeistari 2010 í borðtennis

Víkingur varð  Íslandsmeistari 1. deildar karla 2010 í borðtennis í kvöld, þriðjudaginn 27. apríl, eftir að hafa sigrað lið KR í hreinum úrslitaleik 4 – 0. Lið Íslandsmeistara Víkings er skipað þeim Magnúsi K. Magnússyni, Sigurði Jónssyni

og Daða Frey Guðmundssyni.


Lesa frétt »
28.4.2010

Aðalfundur handknattleiksdeildar Víkings

Aðalfundur handknattleiksdeildar Víkings meistaraflokkar/ unglingaráð verður  í Víkinni fimmtudaginn 6. maí 2010, kl. 20:00.

 

 


 


Lesa frétt »
27.4.2010

KFC mót Víkings í 7. flokki karla og kvenna fer fram um næstu helgi.

Hið árlega KFC mót Víkings i 7. flokki karla og kvenna í knattspyrnu fer fram um næstu helgi. Um  60 strákalið eru skráð til keppni sem fram fer  laugardaginn 1. maí.  Hjá stelpunum eru um 37 lið skráð til keppni og spila þær á sunnudeginum 2. maí. Leikið verður á gervigrasvellinum.


Lesa frétt »
26.4.2010

Aðalfundur HK / Víkings


Aðalfundur HK / Víkings verður haldinn í Fagralundi mánudaginn 3. maí 2010, kl. 17:30

Dagskrá:

 

1.  Venjuleg aðalfundarstörf.

2.  Önnur mál.

Stjórnin.

26.4.2010

Frábærum Andrésar Andarleikum lokð

Nú eru einn einum frábærum Andrésar Andarleikum lokið og Víkingar eignuðust m.a. 5 Andrésar Andarmeistara.
Lesa frétt »
25.4.2010

Víkingur er úr leik eftir tap gegn Gróttu

Víkingar tóku á móti Gróttu í öðrum leik undanúrslita í úrlitakeppni um laust sæti í efri deild á sunnudagskvöldið 25. apríl. Grótta vann fyrri leikinn með tveggja marka mun á Seltjarnarnesi á föstudagskvöldið. Víkingar höfðu því harma að hefna. Þeir urðu að vinna leikinn til að knýja fram oddaleik. Vel var mætt í húsið og voru áhorfendabekkir troðfullir af áhorfendum beggja liða.

Lesa frétt »
24.4.2010

HK/Víkingur lagði Fjölni í Egilshöll

HK/Víkingur innbyrti í kvöld sinn fyrsta sigur í Lengjubikar meistaraflokks kvenna á þessu tímabili með því að vinna Fjölni, 3:1, í Egilshöllinni. Það voru Ingibjörg Björnsdóttir, Tinna Óðinsdóttir og Hugrún Friðriksdóttir sem skoruðu mörkin fyrir HK/Víking. Lesa frétt »
24.4.2010

Naumt tap fyrir Gróttu í fyrsta leik

Víkingar sóttu Gróttu heim í kvöld vestur á Seltjarnarnes. Fyrri leikur liðanna í umspilinu var leikinn á heimavelli Gróttu. Það lið sem vinnur tvo leiki fer í úrslitakeppni um laust sæti í efri deild handboltans. Afturelding og IBV keppa síðan um hitt sætið í úrslitakeppninni. Lesa frétt »
23.4.2010

Mikið fjör á sumarhátíðinni.

Sumardagurinn fyrsti var haldin hátíðlegur í gær.

Fjöldi fólks safnaðist saman við Grímsbæ og  þar grilluðu 2.fl. leikmenn í knattspyrnu pylsur af stakri snilld. Síðan var farið í  skúrðgöngu í Víkinna með viðkomu í Bústaðarkirkju.




Lesa frétt »
21.4.2010

Aðalfundur Tennisdeildar Knattspyrnufélagsins Víkings



Aðalfundur Tennisdeildar Knattspyrnufélagsins Víkings verður haldinn í Víkinni mánudaginn 4. maí 2010, kl. 19:00

Dagskrá:

 

1.  Venjuleg aðalfundarstörf.

2.  Önnur mál.

Stjórnin.

21.4.2010

Til hamingju með afmælið Víkingar!



Knattspyrnufélagið Víkingur var stofnað 21. apríl árið 1908 í kjallaranum að Túngötu 12 í Reykjavík, þar sem Emil Thoroddsen átti heima. Á stofnfundinn mættu 32 drengir. Aðalhvatamenn og í fyrstu stjórn voru fyrirliði hópsins og fyrsti Víkingurinn, Axel Andrésson þá 12 ára gamall, formaður, Emil Thoroddsen 9 ára, ritari og Davíð Jóhannesson, 11 ára, gjaldkeri. Aðrir stofnendurnir voru Páll 8 ára bróðir Axels, og Þórður Albertsson, 9 ára. Við erum því 102 ára í dag. Til hamingju með daginn Víkingar.
20.4.2010

Aðalfundur Barna- og unglingaráð knattspyrnudeild Víkins.



Aðalfundur Barna- og unglingaráðs Knattspyrnudeildar Víkings verður haldinn í Víkinni fimmtudaginn 29. apríl 2010, kl. 20:00

 


Lesa frétt »
19.4.2010

Aðalfundur Skíðadeildar Víkings

Aðalfundur Skíðadeildar Víkings verður haldinn í Víkinni mánudaginn 3. maí 2010, kl. 20:00

 

Dagskrá:

 

1.  Venjuleg aðalfundarstörf.

2.  Önnur mál.

 

 Stjórnin.

19.4.2010

Aðalfundur Fulltrúaráðs Knattspyrnufélagsins Víkings


Aðalfundur Fulltrúaráðs Knattspyrnufélagsins Víkingsverður haldinn í Víkinni miðvikudaginn 28. apríl 2010, kl. 20:00

Dagskrá:

1.  Venjuleg aðalfundarstörf.

2.  Önnur mál.


Stjórnin.

19.4.2010

Aðalfundur Karatedeildar Víkings

Aðalfundur Karatedeildar Víkings verður haldinn í Víkinni miðvikudaginn 28. apríl 2010, kl. 20:00

Dagskrá:

1.  Venjuleg aðalfundarstörf.

2.  Önnur mál.

Stjórnin.

19.4.2010

Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Víkingi

Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Víkingi

Í dag er borinn til grafar  Jóhann Gunnar Gíslason

eða Jói  Gísla eins og við Víkingarnir kölluðum hann.


Lesa frétt »
15.4.2010

Lengjubikar:Víkingur - Selfoss á Víkingsvellinum föstudagskvöld kl.19:00



Víkingur mætir Selfoss föstudaginn 16. apríl kl. 19:00 á Víkingsvellinum.

13.4.2010

Vormót Víkings

Sunnudaginn 11. apríl fór fram Vormót Víkings fyrir 6.fl. karla í knattspyrnu.  Fjögur íþróttafélög sendu alls 24 lið til keppni, en það voru lið frá FH, Gróttu og Þrótti Rvk auk gestgjafa í 6. fl. Víkings.

Mótið hófst snemma morguns og var leikið í fjórum riðlum þar sem öll lið léku fimm leiki.  Stóðu öll lið sig vel og voru margir spennandi leikir á dagskrá þennan morgun í Víkinni.

 


Lesa frétt »
13.4.2010

Þrír Víkingar valdir til að taka þátt í grunnskólamóti höfuðborga sem fram fer í Finnlandi.

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna fer fram Pajulahti í Finnlandi dagana 24.-28. maí 2010.  Keppt verður í frjálsum íþróttum drengja og stúlkna, knattspyrnu drengja og körfuknattleik stúlkna. Þrír leikmenn frá Víkingi hafa verið valdir til að keppa í knattspyrnu fyrir hönd Reykjavíkurborgar þetta eru þeir Einar Sveinn Pálsson, Aron Jakobsson og Óttar Magnús Karlsson Við óskum þessum krökkum innilega til hamingju með valið og góðs gengis á leikunum í Finnlandi.


Lesa frétt »
12.4.2010

Stórt tap á Skaganum

HK/Víkingur sótti ekki gull í greipar Skagastúlkna þegar liðin mættust í Akraneshöllinni í gær. Þetta var annar leikur HK/Víkings í deildabikarkeppni meistaraflokks kvenna, Lengjubikarnum, og honum lauk með sigri ÍA, 5:0. Lesa frétt »
8.4.2010

2. fl.kvenna: Sætur sigur eftir mark á síðustu mínútu

Þær höfðu ástæðu til að brosa breitt, stúlkurnar í 2. flokki, þegar þær gengu af gervigrasvellinum í Fagralundi í vorblíðunni í kvöld. Þeim tókst að innbyrða sigur á Þrótti, 3:2, fyrsta sigurinn í Faxaflóamótinu í vetur, og Telma Dögg Óskarsdóttir skoraði þar sigurmarkið á síðustu mínútunni. Lesa frétt »
7.4.2010

Dósasöfnun Víkings.


Ágætu Víkingsforeldrar.

 

Enn á nýjum stofnum við til almennrar dósasöfnunar í hverfinu til fjármögnunar á öflugu barna- og unglingastarfi knattspyrnu- og handboltadeilda Víkings. Að þessu sinni söfnum við dósum og flöskum eftir páskahátíðina og jafnframt rafhlöðum og farsímum. Dreifiriti um söfnunina hefur verið dreift á öll heimili í hverfinu.

 


Lesa frétt »
31.3.2010

Ásdís og Eva aftur í HK/Víking

Meistaraflokkur kvenna hefur fengið liðsauka fyrir baráttuna í sumar því þær Ásdís Ósk Heimisdóttir og Eva Eðvaldsdóttir eru komnar frá Breiðabliki á nýjan leik.

  Lesa frétt »
30.3.2010

Víkingar í úrslitakeppnina eftir stórsigur á ÍR

Víkingur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitakeppninni í 1. deild karla í handknattleik með stórsigri á ÍR 28:16 í Víkinni.
Stórskyttan Sveinn Þorgeirsson var markahæstur Víkinga með 6 mörk og leikstjórnandinn Davíð Georgsson skoraði 5 gegn sínum gömlu félögum í ÍR.


Lesa frétt »
29.3.2010

Jafntefli gegn Álftanesi

HK/Víkingur og Álftanes gerðu í kvöld jafntefli, 1:1, í fyrsta leiknum í deildabikar meistaraflokks kvenna, Lengjubikarnum, sem fram fór í Egilshöllinni. Guðrún Anna Atladóttir skoraði mark HK/Víkings.
Lesa frétt »
29.3.2010

Mikilvægur leikur hjá meistaraflokki karla í handbolta á morgun.

Meistaraflokkur karla í handbolta fær ÍR í heimsókn á morgun kl. 19:30.  Jafntefli eða sigur tryggir okkur sæti í umspil um sæti í úrvalsdeild.
Mikilvægt að allir Víkingar mæti í rauðu og svörtu og styðja strákana til sigurs.

ÁFRAM VÍKINGUR
Lesa frétt »
26.3.2010

Meistaraflokkur kvenna fær HK í heimsókn á morgun í N1 deild kvenna.

Meisaraflokkur kvenna fær HK í heimsókn á morgun í N1 deild kvenna og hefst leikurinn kl. 16:00. Þetta er síðasti leikurinn hjá stelpunum  í mótinu og eru þær ákveðnar í að berjast til sigurs. Fjölmennum og styðjum stelpurnar til sigurs.
25.3.2010

Lengjubikarinn - Víkingur - Fram á laugardaginn 27. mars kl. 12:00

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu fær Fram í heimsókn á laugardaginn og hefst leikurinn kl. 12:00 á gervigrasinu.
Staðan í riðlinum er þannig að Fram er í þriðja sæti með 10. stig en við í fjórða sæti með 9. stig má því búast við hörkuleik á laugardaginn.

 
25.3.2010

Þrír Víkingar valdir á úrtaksæfingar U17 í knattspyrnu um næstu helgi.

Gunnar Guðmundsson þjálfari U17  landsliðs Íslands í knattspyrnu hafa valið þá Aron Elís Þrándarson, Patrik  Snær Atlason og Jón Rey Jóhannsson á úrtaksæfingarnar sem fram fara um næstu helgi. Alls vour 27 leikmenn valdir á þessar æfingar.


22.3.2010

Víkingarnir Magnea og Eyrún sigurvegarar Íslandsmóts unglinga

Víkingarnir Magnea J. Ólafs og Eyrún Elíasdóttir sigruðu þrefalt á Íslandsmóti unglinga 2010 sem fram fór í Íþróttahúsi Kennaraháskólans 20.-21. mars í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarkeppni.


Lesa frétt »
21.3.2010

2. fl.kvenna: FH-ingar voru sterkari

HK/Víkingur tók á móti FH í Faxaflóamótinu í 2. flokki kvenna á gervigrasvellinum í Fagralundi síðdegis í dag. FH var sterkari aðilinn í leiknum og uppskar sanngjarnan sigur, 2:0.

Lesa frétt »
20.3.2010

Öruggur sigur Víkinga á Fjölni

Víkingar sóttu Fjölni heim í Grafarvoginn á föstudagskvöldið. Þetta var leikur sem skilyrðislaust átti að vinnast. Fjölnispiltum stýrir hinn vel þekkti Víkingur Gunnar Gunnarsson. Hann hefur tekið það að sér að leiða uppbyggingu handboltans í Grafarvoginum. Vonandi gengur það vel því hvert lið sem bætist við í deildakeppnina er af hinu góða.
Lesa frétt »
20.3.2010

Konur í banastuði

Kvennakvöld Víkings var föstudaginn 19. mars í Víkinni. Á annað hundrað meyjar á öllum aldri hittust þar á samkomu sem óhætt er að segja að sé með þeim allra flottustu sem félagsheimili Víkings hýsir!


Lesa frétt »
19.3.2010

Víkingur deildarmeistari í borðtennis

A-lið Víkings karla varð í dag, 19. mars 2010, deildarmeistari í borðtennis eftir að hafa lagt að velli A lið KR 4 – 2 í spennandi leik  í TBR-Íþróttahúsinu. Liðið er skipað Daða Freyr Guðmundssyni, Sigurði Jónssyni og Magnúsi K. Magnússyni.

Lesa frétt »
19.3.2010

Sólveig samdi sem leikmaður og sjúkraþjálfari

Sólveig Þórarinsdóttir hefur skrifað undir tvo samninga við knattspyrnudeild HK. Annars vegar sem leikmaður meistaraflokks HK/Víkings næstu tvö árin og hins vegar sem sem sjúkraþjálfai liðsins. Lesa frétt »
19.3.2010

Opið kvöld í Víkinni á vegum fulltrúaráðs

Karla og konur í Víkingi! Það verður opið kvöld 22. mars kl. 19:45 á vegum fulltrúarráðs félagsins.

Lesa frétt »
18.3.2010

Helgi tryggði Víkingi sigur á Leikni.

Í kvöld sigurðu Víkingar lið Leiknis 1-0 í fyrsta opinbera leik Víkings á gervigrasvellinum í Víkinni. Mark Víkings skoraði Helgi Sigurðsson í seinni hálfleik en þetta var fjórða mark hans í fjórum leikjum í deildarbikarnum. Nánar á vikingur.net

18.3.2010

Fyrsti mótsleikurinn hjá meistaraflokki karla á gervigrasvelli Víkings fer fram í kvöld kl. 19.00.


Fyrsti mótsleikur meistaraflokks karla fer fram á gervigrasinu í kvöld kl. 19:00 en þá koma Leiknismenn í heimsókn. Leikurinn er í Lengjubikarnum og erum við sem stendur í fjórðasæti með sex stig eftir þrjá leiki.


18.3.2010

Þrjár Víkingsstelpur valdar á úrtaksæfingu U16 og einn í U18 í handbolta.

Þær Díana Ágúsdóttir, Hildur Gunnarsdóttir og Rebekka Friðriksdóttir hafa verið valdar á úrtaksæfingu U16 og Hugrún Lena Hansdóttir í U18  ára landsliðsins í handbolta. Æfingarnar fara fram dagana 29. - 31. mars. Til hamingju stelpur og gangi ykkur vel. Nánari upplýsingar má finna hér.


17.3.2010

8. flokkur í handbolta stóð sig vel á um helgina.

    

Víkingur sendi 3 lið á TM mót Stjörnunnar  í áttunda flokki um síðustu helgi og stóðu krakkarnir sig frábærlega.

16.3.2010

Stúlkum úr HK/Víkingi boðið til Malmö

Halldóra Björk Sigurðardóttir, þjálfari 2. flokks kvenna hjá HK/Víkingi, dvaldi á dögunum hjá sænska stórliðinu Malmö. Í  framhaldi af því hefur HK/Víkingi verið boðið að senda tvo leikmenn til æfinga með unglingaliði félagsins í vor. Einn af þjálfurum unglingaliðsins er Ásthildur Helgadóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands sem áður lék sem atvinnumaður með Malmö. Lesa frétt »
16.3.2010

Leik Víkings og Leiknis hefur verið flýtt til fimmtudags og verður spilaður á Víkingsvelli.


Leikur Víkings og Leiknis í meistaraflokki karla í fótbolta  hefur verið færður til.
Leikurinn mun fara fram á fimmtudaginn kl 19.00 í Víkinni. en ekki á föstudagskvöldið eins og til stóð.
12.3.2010

Öruggur sigur á Þrótti

Víkingar tóku á móti Þrótti í Víkinni á föstudagskvöldið. Víkingur hafði unnið báða fyrri leiki liðanna örugglega og búist var við sigri í leiknum. Víkingur þarf að vinna alla leiki liðsins sem eftir eru til að þeir hafi möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Því kom ekkert annað til greina en að keyra af fullu í leikinn. Lesa frétt »
12.3.2010

Samningar í meistara- og 2. flokki kvenna - 3. hluti

Þá er komið að því að segja frá næstu fimm stúlkum úr meistaraflokki og 2. flokki HK/Víkings sem hafa  skrifað undir samninga við félögin til næstu tveggja ára.

Lesa frétt »
12.3.2010

Samningar í meistara- og 2. flokki kvenna - 2. hluti

Eins og sagt var frá hér á Víkings-vefnum fyrir skömmu hefur stór hópur af stúlkum í meistaraflokki og 2. flokki HK/Víkings skrifað undir samninga við félögin tvö, margar þeirra sinn fyrsta samning á ferlinum.

Lesa frétt »
12.3.2010

Hugrún boðuð á úrtaksæfingu U16 ára landsliðsins í knattspyrnu.

Hugrún Friðriksdóttir leikmaður 3. flokks kvenna hefur verið boðuð á úrtaksæfingu U16 ára landsliðsliðsins um helgina. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll um helgina.


12.3.2010

Leikur við Þrótt í kvöld.

Meistaraflokkur karla í handbolta fær Þrótt í heimskókn í kvöld kl. 19:30. Leikurinn fer fram í Víkinni.  Hvetjum alla til að mæta og styðja strákanna okkar til sigurs.

Lesa frétt »
12.3.2010

Meistaraflokkur karla með góðan 3 - 0 sigur á Fjölnir í lengjubikarnum.

Nokkrar breytingar voru gerðar á Víkingsliðinu frá því í úrslitaleiknum á móti KR.
Milos G. var meiddur og leysti Tommi hann af í miðverðinum en Walter fór í hægri bakvörðinn. Þá var Danni Hjalta meiddur og kom Siggi Lár inní liðið fyrir hann. Að lokum var Kiddi Magg hvíldur og tók Milos M.  hans stöðu.
Það var ekki langt liðið á leikinn þegar Helgi Sig var búinn að koma okkur yfir. Helgi var rétt staðsettur í markteig Fjölnismanna og var ekki í neinum vandræðum með að skora.


Mynd  Pétur Svansson skorðai eitt mark.
Lesa frétt »
11.3.2010

3. flokkur kvenna deildarmeistari í handbolta 2010.

Þriðji flokkur kvenna varð deildarmeistari í handbolta árið 2010 eftir að liðið vann glæstan sigur á liði HK í gærkveldi 24 – 22. Leikurinn var mjög spennandi en liðið hafði sigur eftir dramatískar lokamínútur og tryggði sér þannig 2. Deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að það séu enn eftir tvær umferðir af mótinu. Lesa frétt »
10.3.2010

Góður sigur hjá 2. flokk á Haukum

Víkingar fengu Hauka í heimsókn á þriðjudagskvöldið. Liðin voru með jafnmörg stig fyrir leik kvöldsins. Haukar höfðu ekki tapað leik í deildinni frá því Víkingur sigraði þá örugglega í Hafnarfirði í nóvember á meðan Víkingur hafði tapað nokkrum stigum gegn liðum í neðri hluta deildarinnar. Bæði lið ætluðu sér sigur í leiknum til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Víkingur þurfti á stigi að halda til að tryggja sér örugglega sæti. Lesa frétt »
9.3.2010

Knattspyrnudeild Víkings semur við Puma.

Knattspyrnudeild Víkings og Tótem, umboðsaðili Puma á Íslandi, hafa skrifað undir 4ra ára samning um að knattspynulið Víkings leiki í búningum frá Puma.

Puma er eitt af leiðandi vörumerkjum í íþróttabúnaði í heiminum og því er það fagnaðarefni fyrir Víking að samningar hafi náðst.



Lesa frétt »
8.3.2010

Glæsimörk Halla ekki nóg gegn KR í úrslitum Reykjavíkurmótsins


Umfjöllun: Glæsimörk Halla ekki nóg gegn KR í úrslitum Reykjavíkurmótsins
Tómas Þór Þórðarson | Mán. 08. mars 2010 kl. 10:45

Strákarnir fagna glæsilegu marki Halla.
Mynd: Gísli Baldur

Það ætlar að reynast Víkingum erfitt að vinna blessað Reykjavíkurmótið en á sunnudaginn tapaði liðið sínum þriðja úrslitaleik á fimm árum. Nú lágu Víkingar gegn KR, 3-2, í hörkuleik þar sem Halldór Smári Sigurðsson skoraði tvö mögnuð mörk. Nánar á vikingur.net


7.3.2010

Íslandsmótið í borðtennis 2010

Keppnisfólk Víkings sigruðu í öllum meistaraflokkunum á Íslandsmótinu 2010 sem fór fram

Í TBR-Íþróttahúsinu helgina 6-7 mars 2010.

Sigurvegari mótsins var Guðmundur E. Stephensen Víkingi sem sigraði þrefallt

Víkingurinn Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi sigraði tvöfallt

Lesa frétt »
7.3.2010

HK/Víkingur - undirskriftir leikmannasamninga

Unnið er hörðum höndum að því að skipuleggja umgjörðina um meistaraflokk kvenna og 2. flokk sem leika undir merkjum samstarfs HK og Víkings.
Lesa frétt »
6.3.2010

Slæmt tap í Mosfellsbæ

Víkingar sóttu Aftureldingu heim í Mosfellsbæinn á föstudagskvöldið. Víkingar sigruðu Aftureldingu í bikarnum fyrr í vetur og síðan náði Afturelding jafntefli viku síðar í Víkinni. Afturelding vann Víkinga síðan í Mosfellsbæ skömmu fyrir jól. Það var því útlit fyrir jafnan leik sem var mikilvægur fyrir Víkinga ef þeir ætluðu að hafa möguleika á að ná í umspil um laust sæti í efri deild handboltans. Afturelding vildi aftur á móti tryggja sig á toppi deildarinnar og auka möguleikana á að ganga upp um deild. Lesa frétt »
5.3.2010

Stórleikur hjá 4. flokki kvenna um helgina Víkingur - Fram

Það verður hörkuleikur á sunnudaginn kl 17:00 þá tekur fjórði flokkur kvenna á móti Fram í Víkinni.

Víkingur er í fyrsta sæti í  deildinni búnar að tapa einu stigi en Framara eru búnar að tapa tveimur stigumog eru í öðru sæti. Þetta verður háspenna allan leiktímann.

Hvetjum alla Víkinga að mæta og hvetja okkar stelpur. Þarna eru margar af efnilegustu handboltakonum landsins.

Koma svo – handbolti er skemmtilegur

Lesa frétt »
4.3.2010

BARÁTTAN UM BORGINA!

Upphitun: Víkingur - KR

Guðjón Guðmundsson

Hvað? Hvar? Hvenær? Reykjavíkurmót, úrslitaleikur. Víkingur-KR, sunnudagurinn 7. mars klukkan 20.00

Síðustu viðureignir:
Víkingur og KR hafa spilað marga leiki á undanförnum árum. Ekki er langt síðan liðin spiluðu síðast, en það var í A riðli reykjavíkurmótsins 23. janúar síðastliðin. Þeim leik lauk með jafntefli 3-3. Á síðustu tíu árum hafa liðin spilað 19 leiki og hafa KR-ingar sigrað í tíu leikjum en Víkingur í fjórum, fimm leikjum hefur lokið með jafntefli.
Nánar á vikingur.net



3.3.2010

Selfoss sigraði Víking 2. fl. kk í Víkinni

Víkingur og Selfoss mættust í 1. deild 2. fl. kk í Víkinni á þriðjudagskvöldið. Víkingar voru efstir í deildinni fyrir leikinn en Selfoss nokkru stigum neðar. Selfoss hafði unnið Víkinga í tvígang fyrr í vetur svo vitað var að þeir yrðu erfiðir andstæðingar. Á hinn bóginn hafði Selfyssingum gengið illa á útivelli í vetur. Það var því útlit fyrir spennandi leik þar sem ekkert yrði gefið eftir.

Lesa frétt »
3.3.2010

Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu hjá Víkingi.

Unglingadómaranámskeið hjá Víkingi í Víkinni. Verður haldið mánudaginn 7. mars kl. 19:00 í Víkinni.
Lesa frétt »
2.3.2010

Víkingur - Selfoss í 2 fl kk í kvöld, 02/03, kl. 20:00

Við Víkingar erum efstir í deildinni og því er mikilvægt að landa sigri gegn sterku liði Selfyssinga í kvöld. Hvetjum alla stuðningsmenn að mæta í kvöld til að styðja strákana.  Áfram Víkingur.
2.3.2010

Rafn Kumar sigursæll á Stórmóti Tennissambands Íslands

Rafn Kumar Bonifacius, tennismaður Víkings árið 2009, átti mikilli velgengni að fagna á Stórmóti Tennissambands Íslands sem fram fór um helgina. 
Lesa frétt »
26.2.2010

2- 0 tap gegn FH

Í gær mættust Víkingur og FH í lengjubikarnum. Leiknum lauk með sannfærandi 2-0 sigri FH. Mörk FH skoruðu Gunnar Guðmundsson og Ólafur Páll Snorrason. Þetta var fyrsta tap Víkingsliðsins síðan í nóvember. nánar á vikingur.net
25.2.2010

Æfingar hjá 7. og 6. flokki kvenna í fótbolta falla niður í dag fimmtudag 25. febrúar vegna veðurs.

Æfingar hjá 7. og 6. flokki kvenna í fótbolta falla niður í dag fimmtudag 25. febrúar vegna veðurs.

25.2.2010

VÍKINGUR - FH Í EGILSHÖLL Í KVÖLD KL. 19:15

Víkingur mætir FH í annari umferð í riðli 2 í Deildarbikarnum í kvöld kl. 19:15 í Egilshöll.
Bæði liðin unnu sína leiki 3 -0 í fyrstu umferð er því um sankallaðan toppslag að ræða.
nánar umfjöllun um leikinn má finna á vikingur.net

Lesa frétt »
24.2.2010

HK/Víkingur mætir ÍR í bikarnum

Í morgun var dregið til fyrstu umferðanna í bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki kvenna. HK/Víkingur situr hjá í 1. umferðinni en mætir ÍR á útivelli í 2. umferðinni og er spilað laugardaginn 5. júní.

ÍR-ingar leika eins og HK/Víkingur í 1. deild í sumar eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í fyrra. Sigurliðið í leiknum fer í 16-liða úrslit keppninnar en þar mæta lið úrvalsdeildar til leiks.

Niðurröðun bikarkeppninnar 2010.

Mynd: Hildigunnur Sól Eldjárn í leik með meistaraflokki HK/Víkings síðasta sumar.

Heimild HK.is

24.2.2010

Annar flokkur karla byrjar Reykjavíkurmótið á stórsigri á Fylki 6 - 0

Annar flokkur karla vann Fylki 6 – 0 í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins á sunnudaginn leikurinn fór fram á gervigrasvellinum okkar.

Karel skoraði 3 þar af tvö úr víti, Daníel, Tómas og Jakob settu eitt hver. Næsti leikur liðsins verður gegn ÍR á laugardaginn 28. febrúar kl. 14:00 og fer leikurinn fram á ÍRvelli.

Mynd;

Tómas Guðmundsson setti eitt mark með skalla.


Lesa frétt »
23.2.2010

Víkingur vann Val á Hlíðarenda í 2. fl. kk.

Víkingar spiluðu við Val að Hlíðarenda í 2. fl. kk í handbolta á þriðjudagskvöldið. Val hefur ekki gengið vel í vetur og er neðst í 1. deildinni á meðan Víkingur er meðal efstu liða. Það er hins vegar enginn leikur unninn fyrirfram og það verður að hafa fyrir öllu í þessu efni. Víkingar lentu í ströggli í tveimur síðustu leikjum gegn liðum sem voru neðarlega í deildinni svo það var ekkert gefið eftir. Lesa frétt »
22.2.2010

Víkingur Íslandsmeistari í borðtennis 2010 í 1. deild kvenna

Lið Víkings varð um helgina Íslandsmeistari í 1 deild kvenna eftir sigur á liði Dímon frá Hvolsvelli.

Víkingur sigraði Dímon 3 - 0 öðru sinni í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í Íþróttahúsinu

á Hvolsvelli föstudaginn 19. febrúar 2010.  Fyrri leikurinn fór fram í heimavelli

Víkings í TBR-Íþróttahúsinu við Gnoðarvog 14. febrúar  þar sem Víkingur sigraði örruglega  3 – 0

Lið Íslandsmeistara Víkings er skipað þeim Evu Jósteinsdóttur og Lilju Rós Jóhannesdóttur.

 

Lesa frétt »
22.2.2010

Keppnisfólk Víkings mjög sigursæl á Grand Prix móti Rafkaups um helgina og sigruðu í öllum flokkum sem keppt var um


Grand Prix mót Rafkaups í borðtennis fór fram 20-21 febrúar 2010

í Íþróttahúsi TBR við Gnoðarvog í Reykjavík.

Keppt var í Opnum flokki karla og kvenna.  Allt besta borðtennisfólk landsins

keppti á mótinu.

Lesa frétt »
22.2.2010

Góður 3 - 0 sigur á KA


Þobbi var frábær gegn KA.
Mynd: Gunnlaugur Júlíus

Víkingar hætta ekki að vinna fótboltaleiki. Þeir höfðu sigur á KA í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum, 3-0. Helgi Sigurðsson skoraði tvö mörk og Halldór Smári Sigurðsson eitt en mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri. nánar á vikingur.net

Lesa frétt »
21.2.2010

Selfoss vann öruggan sigur í Víkinni

Víkingar fengu Selfyssinga í heimsókn í Víkina á föstudagskvöldið. Selfoss er á hraðri leið upp um deild á meðan Víkingar mega hafa sig alla við með að ná að halda sér meðal fjögurra efstu liða. Liðin sem verða í 2-4 sæti komast í úrslitakeppni um laust sæti í efstu deild. Það var því mikið undir hjá Víkingum í þessum leik. Leikir Víkinga og Selfoss hafa verið jafnir það sem af er vetri en Selfoss hefur farið með sigur af hólmi í báðum fyrri leikjum liðanna. Lesa frétt »
19.2.2010

Lengjubikarinn hefst um helgina.

Lengjubikar karla hefst um helgina og leikur Víkingur við KA í 1. umferð.   Leikurinn fer fram í Egilshöll á lagardaginn laugardaginn og hefst kl. 17:00.

Lesa frétt »
18.2.2010

Víkingur - KA/Þór laugardag kl 16:00 í N1 deild kvenna

Stelpurnar spiluðu einn sinn besta leik í ár gegn FH og því eru möguleikarnir gegn norðanstúlkum góðir. Lesa frétt »
18.2.2010

Víkingur - Selfoss á föstudag kl: 19:30 - Góður möguleiki á N1 deildar sæti -Fyrirkomulag úrslitakeppni 1 deildar.

Nú verða allir Víkingar að mæta á leikinn og styðja við okkar stráka því það eru góðir möguleikar á því að tryggja sér sæti meðal þeirra bestu. Lesa frétt »
16.2.2010

HK náði jafntefli í Víkinni

HK sótti 2. fl. kk í handbolta heim í Víkina á þriðjudagskvöld. Víkingar voru nokkru ofar í deildinni. Víkingar unnu fyrri leik liðanna í HK salnum fyrr í vetur eftir að hafa lent mjög illa undir framan af leiknum. Það var því ekkert á vísan að róa í þessum leik enda þótt allmörg stig skyldu liðin að í töflunni. Lesa frétt »
15.2.2010

Í úrslit eftir sigur á Fylki.

Víkingar munu leika til úrslita í Reykjavíkurmótinu eftir sigur á Fylki í undanúrslitum. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem Víkingar höfðu betur en Hjalti Már Hauksson skaut Víkingum í vítaspyrnukeppnina í uppbótartíma. Nánar á vikingur.net
Lesa frétt »
14.2.2010

HK/Víkingur fer þrjár ferðir norður

Í dag var dregið í riðla fyrir keppni í 1. deildinni í meistaraflokki kvenna. HK/Víkingur er í átta liða riðli þar sem leikin er tvöföld umferð og fer þrjár ferðir á Norðurlandið og tvær á Suðurnesin. Lesa frétt »
13.2.2010

ÍR sótti sigur í Víkina

ÍR ingar sóttu 2. flokk kk í handbolta heim í Víkina á fimmtudagskvöldið. Víkingar höfðu einungis tapað fjórum stigum í deildinni fyrir þennan leik en ÍR hafði einungis náð í fimm stig. Víkingar unnu fyrri leik liðanna með miklum mun  snemma vetrar: Mikilvægt var fyrir Víkinga að fara með sigur af hólmi í leiknum og styrkja þannig enn fremkar stöðu sína á toppi deildarinnar. Á hinn bóginn hafði verið mikið álag á Víkingum dagana á undan. Þetta var þriðji leikur 2. flokks á átta dögum og sumir höfðu þar að auki leikið með meistaraflokki í tveimur leikjum til viðbótar á sama tíma. Lesa frétt »
11.2.2010

2 - 1 sigur á Þrótti og efsta sæti í riðlinum tryggt.

Meistaraflokkur karla spilar undanúrslitaleik við Fylki á sunnudagskvöld kl. 20:00 eftir góðan 2 - 1 sigur á Þrótti í kvöld. Það voru þeir Egil Atlason og Þorvaldur Sveinn Sveinsson sem skoruðu mörkin eftir að Þróttur hafði komist yfir 1- 0.
Nánar á vikingur.net
10.2.2010

Tap fyrir Aftureldingu í mikilvægum leik.

Víkingur sótti Aftureldingu heim á þriðjudagskvöldið í 1. deild kk í handknattleik. Víkingar unnu Aftureldingu í bikarnum fyrr í vetur og síðan skildu liðin jöfn í deildinni skömmu síðar. Afturelding var nokkru ofar en Víkingur í töflunni þannig að það var mikilvægt fyrir Víkinga að taka stig í þessum leik ef þeir ætluðu að ná að slást í hóp þeirra liða sem keppa um að komast upp í efstu deild. Lesa frétt »
10.2.2010

Fimm Víkingar valdir á úrtaksæfingar U17 og U19 í knattspyrnu um næstu helgi.

Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson þjálfarar U17 og U19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hafa valið þá Aron Elís Þrándarson, Patrik  Snær Atlason, Kára Sveinsson, Tómas Guðmundsson og Sigurð Lárusson á úrtaksæfingarnar sem fram fara um næstu helgi.  Æfingarnar fara fram á laugardaginn í Kórnum og sunnudaginn í Egilshöll.

Mynd: Tómas Guðmundsson.

10.2.2010

Árgangamóti Víkings

Árgangamóti Víkings

Laugardaginn 23 janúar síðastliðinn var árgangamót Víkings haldið með pomp og prakt í Víkinni.

Um 80 kappar voru mættir til leiks og voru þeir úr 17 árgöngum.  Spilað var á tveimur völlum þvert á Víkina en þannig náðist að spila allt mótið á inna við 4 tímum. 


Lesa frétt »
8.2.2010

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings verður haldinn í Víkinni mánudaginn 15. febrúar 2010, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.

Stjórnin.
Lesa frétt »
8.2.2010

4. flokkur kvenna Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu 2010



4. flokkur kvenna  Íslanndsmeistara  í innanhússknattspyrnu  2010

Stúlkurnar okkar í 4 flokki stóðu sig frábærlega í úrslitakepppninn í innanhússknattspyrnu sem  fram fór   í  Smáranum í gærdag.  Stúlkurnar spiluðu 5 leiki í keppninni töpuðu fyrsta leiknum  gegn HK og unnu svo alla hina  og hefndu ófaranna frá því  fyrr um daginn með því að vinna  HK  í framlengdum úrslitaleik  1 -  0

Lesa frétt »
6.2.2010

Sætur en erfiður sigur í Víkinni


Víkingar fengu Akureyringa í heimsókn í Víkina laugardaginn 6. febrúar í 1. deildar keppni 2. fl. kk. Liðin voru á áþekkum stað í deildinni en Akureyringar höfðu tapað einu stigi minna en Víkingar. Víkingar byrjuðu illa í haust á meðan Akureyringar byrjuðu mjög vel. Þeir töpuðu svo síðasta leik sínum gegn Haukum sem Víkingar unnu af öryggi fyrir jólin. Það var því búist við jöfnum og spennandi leik. Lesa frétt »
6.2.2010

Vörðust vel gegn firnasterku Valsliði

Íslands- og bikarmeistarar Vals sigruðu HK/Víking eins og vænta mátti þegar liðin mættust í Reykjavíkurmóti meistaraflokks kvenna í Egilshöllinni í gærkvöld. Lokatölur urðu 8:0 eftir að staðan var 4:0 í hálfleik.

Lesa frétt »
5.2.2010

Víkingur vann öruggan sigur á Þrótti í Víkinni


Víkingar fengu Þrótt í heimsókn í Víkina á föstudagskvöldið. Víkingar áttu að spila til öruggs sigurs í þessum leik miðað við stöðu liðanna í deildinni. Þróttarar hafa átt erfitt uppdráttar í deildinni á meðan Víkingar eru nær toppbaráttunni. Þó áttu Víkingar í hálfgerðum erfiðleikum með Þrótt þegar liðin léku saman í Laugardalshöllinni fyrir jólin.   Lesa frétt »
4.2.2010

Naumur en sætur sigur í Krikanum

2. fl. Víkings sóttu FH heim í Krikann á fimmtudagskvöldið. FHingar voru einu stigi ofar en Víkingar í töflunni en höfðu spilað fleiri leiki. FH vann nauman sigur í Víkinni fyrr í vetur svo Víkingar hugðu á hefndir. FHingar eru yfirleitt lægri í loftinu en Víkingar en þeir eru snöggir og vel spilandi svo það þýðir ekki að vanmeta þá.  

Lesa frétt »
4.2.2010

Fjórði og fimmti flokkur kvenna spila til úrslita í Íslandsmótinu í Futsal.

Fjórði og fimmti flokkur kvenna spila til úrlita í Íslandsmótinu í Futsal um næstu helgi.
Fimmti flokkur spila Garðinum á laugardaginn en fjórði flokkur fer í Kópavoginn á sunnudaginn.
Ítarlegt leikjaplan KSÍ fyrir öll mótin má sjá hér: 5. flokkur og 4. flokkur
31.1.2010

Stoltur af síðustu 40 mínútunum hjá okkur

Þeir voru svo sannarlega ólíkir hálfleikirnir tveir þegar HK/Víkingur mætti Fylki í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í Egilshöllinni síðdegis í dag. Í þeim fyrri opnuðust allar flóðgáttir og staðan að honum loknum var 10:0, sterku Fylkisliðinu í hag.

Lesa frétt »