Öruggur sigur Víkinga á Fjölni
17.12.2011


Víkingar náðu strax undirtökum í leiknum og skoruðu hvert markið á fætur öðru án þess að Fjölnispiltum tækist að svara fyrir sig. Siggi skoraði þrjú mörk í upphafi leiks og Jói og Arnar sitt hvort áður en Fjölnir komst á blað. Víkingar juku muninn jafnt og þétt og gáfu aldrei eftir. Staðan varð 7-3, 11-4 og lokatölur í hálfleiknum urðu 15-7. Stefán var Fjölnispiltum erfiður ljár í þúfu því hann varði 11 skot í hálfleiknum. Það var helst línuspilið sem hökti hjá Víkingum seinni hluta hálfleiksins en annars spiluðu þeir af krafti stærstan hluta hans.


Víkingar héldu áfram af sama krafti í seinni hálfleik og skoruðu sjö mörk í röð áður en Fjölnir komst á blað. Þeir juku muninn síðan jafnt og þétt og komust mest í 20 marka mun eða í 32-12. Flestir leikmenn Víkinga fengu að spreyta sig í leiknum og jafnaðist munurinn aðeins undir lokin. Leiknum lauk með 18 marka sigri Víkinga 34-16.


Það má segja Víkingum til hróss í þessum leik að þeir slökuðu aldrei á heldur héldu góðum dampi allan leikinn. Vítin nýttust öll og mörg góð hraðaupphlaup gengu vel upp. Stefán stóð í markinu stærstan hluta leiksins og stóð sig mjög vel. Hann varði 26 skot og mörg úr góðum færum. Arnar átti stórleik og skoraði 14 mörk. Hann hefur komið gríðarlega sterkur til leiks að undanförnu. Einnig átti Jói ágætan leik og skoraði sjö mörk. Vörnin vann vel og hélt Fjölnispiltum að mestu í skefjum.


Þegar fyrri hluta mótsins er lokið þá hafa Víkingar fengið á sig fæst mörk. Það er að þakka samspili góðrar varnar og ágætrar markvörslu. Halldór og Stefán hafa yfirleitt staðið sig með ágætum. Ef annar hefur ekki náð að sýna sitt besta þá hefur hinn komið tvíefldur til leiks. Það vantar hins vegar örlítið upp á sóknarleikinn til að liðið sé í toppbaráttunni. Margt í sókninni hefur verið ágætt en annað síður. Línuspilið hefur gegnumsneitt skilað of litlu og eins hafa hornin á stundum ekki nýst sem skyldi. Vonandi tekst að slípa liðið aðeins betur til í hléinu sem nú kemur fram til janúarloka. Það tókst vel í fyrra og væri gaman ef það gengi einnig eftir í ár svo Víkingar gætu blandað sér að krafti í toppbaráttuna. Það vantar svo sárlega lítið til að svo megi vera. Fleiri myndir frá leiknum er að finna hér.
Þessir skoruðu mörkin:
Arnar Freyr - 14
Jóhann - 7
Gestur - 4
Sigurður - 4
Arne Karl - 2
Kristinn - 1
Grétar Már -1
Jónas - 1.