Guðmundur deildarmeistari í Hollandi
22.12.2011
Guðmundur E. Stephensen margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis
gerði það gott með liði sínu Zoetermeer í úrslitaleiknum um Hollenska
Deildarbikarinn sem fór fram í Amsterdam nú um helgina 17-18 des 2011.
Guðmundur og félagar sigruðu í úrslitaleiknum gegn Wijzenbeek Westa
nokkuð örruglega 4 - 0
Guðmundur sigraði sinn leik gegn Daan Sliepen 3 – 0 (11 – 3, 11 – 9 og 11 – 6 )
Guðmundur keppti einnig í tvíliðaleiknum með liðsfélaga sínum Nathan Van der Lee
og höfðu betur 3 – 1 (11 – 8, 11 – 7, 9 – 11 og 11 – 6).
Guðmundur er því enn ósigraður í Hollensku úrvalsdeildinni í borðtennis.