Íþróttamaður Víkings tilnefndur föstudaginn 30. desember
28.12.2011
Íþróttamaður ársins verður tilnefndur við hátíðlega athöfn á föstudaginn. Við sama tækifæri verður styrkur úr afrekssjóð kvenna innan Víkings afhendur, heiðurfélagar heiðraðir og svo íþróttamenn deilda verðlaunaðir en þeir eru jafnfram í kjöri um íþróttamann Víkings.
Eftirfarandi íþróttafólk hefur verið tilnefnt af sinni deild.
Borðtennis
Guðmundur Eggert Stephensen
Handknattleikur
Sigurður Örn Karlsson
Karate
Kristján Helgi Carrasco.
Knattspyrna
Mark Rutgers.
Skíði
Brynjar Jökull Guðmundsson.
Tennis
Rafn Kumar Bonifacius