Brynjar Jökull Guðmundsson íþróttamaður Víkings 2011
30.12.2011

Brynjar Jökull Guðmundsson skíðamaður er íþróttamaður Víkings árið 2011 en kjörinu var lýst við hátíðlega athöfn í Víkinni fyrr í dag. Brynjar Jökull náði sínum besta árangri hingað til í svigi á alþjólegu svigmóti í Noregi í janúar 2011 þar sem hann endaði í 8. sæti . Þá náði hann að bæta alþjóðlega fispunkta í stórsvigi . Brynjar Jökull keppti á Heimsmeistaramóti sem fram fór í Garmisch – Partenkirchen, hann keppti í svig og stórsvigi . Hann endaði í 57. sæti í undankeppninni í stórsvigi en lauk ekki keppni í svigi.
Brynjar Jökull bætti stöðu sína á heimslista alþjóða skíðasambandsins (FIS) þar sem hann er no.276 í svigi í dag .
Aðrir sem tilnefndir voru í kjörinu voru Sigurður Örn Karlsson handknattleiksmaður, Guðmundur E. Stephensen borðtennismaður, Kristján Helgi Carrasco karatemaður, Mark Rutgers knattspyrnumaður og Rafn Kumar Bonfacius tennismaður.